fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Eyjan

Inga Sæland gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega-„Það er allt í lagi að kaupa hérna í snobbhillinu“

Jakob Snævar Ólafsson
Þriðjudaginn 9. maí 2023 17:30

Inga Sæland

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrr í dag fór fram á Alþingi sérstök umræða um notkun ópíóðalyfja. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var málshefjandi og spurði heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, ýmissa spurninga um áherslur hans við eflingu meðferðarúrræða til handa þeim sem glíma við ópíóðafíkn.

Meðal þess sem kom fram hjá ráðherra var að fjárframlög ríkisins til SÁÁ á þessu ári nemi 1,4 milljörðum króna.

Þingmenn úr öllum flokkum tóku þátt í umræðunni og var mismikið niðri fyrir í ræðum sínum.

Einna harðorðust var Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sem vildi meina að ríkisstjórnin tæki þennan málaflokk alls ekki nógu föstum tökum.

Alls hafa 35 manns látist á þessu ári, hér á landi, vegna ópíóðanotkunar. Sagði Inga að ef allt þetta fólk hefði látist í umferðarslysum „væri búið að lýsa hér yfir neyðarástandi.“

Inga bar því næst saman fjárframlög til SÁÁ við fjárframlög til annarra verkefna og áherslur ríkisstjórnarinnar við tekjuöflun:

Á sama tíma sjáum við það að þetta partí með Evrópuráðsþinginu, það er allt í lagi þótt bara lögreglukostnaður fyrir tveggja daga ráðstefnu sé 1,4 milljarðar. Það er allt í lagi að kaupa hérna í Snobbhillinu niðri á Austurbakka fyrir 6 milljarða í Landsbankahúsinu. Það er allt í lagi að lækka bankaskattinn niður fyrir 0,2%, sem gæfi okkur hreinlega 9 milljarða aukalega í kassann þótt hann héngi bara í þessu tæpa hálfa prósenti sem var áður en hann var lækkaður.“

Ég segi, virðulegi forseti. Í guðanna bænum förum að forgangsraða fjármunum fyrir fólkið fyrst. Hættum að tala um krónur og aura þegar reyndin er sú að við þurfum að takast á við þann risavaxna vanda sem við horfumst í augu við, þar sem unga fólkið okkar er að týna lífi í stórum stíl og að stærstum hluta vegna aðgerðaleysis stjórnvalda. Við þurfum að gera svo miklu, miklu betur.“

Tómas Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, taldi vandann svo brýnan að best færi á því að ríkissjóður gæfi út „opinn tékka“ til SÁÁ og meðferðarheimilanna í Krýsuvík og Hlaðgerðarkoti. Það yrði „aldrei hægt að eyða nógu miklum peningum í það að hjálpa þeim sem eiga við veruleg vandamál að stríða.“ Vitnaði Tómas sérstaklega til Ólafs vinar síns sem hann sagði að hefði látist nýlega vegna of stórs skammts lyfja.

Tómas Tómasson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sumir þingmanna sem tóku þátt í umræðunni töluðu fyrir fjölbreyttari meðferðarúrræðum en þingmenn og heilbrigðisráðherra virtust almennt sammála um að vandinn væri brýnn og að taka yrði hann föstum tökum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sjálfstæðisflokkurinn sagður kasta grjóti úr glerhúsi – Þáði sjálfur 167 milljónir í styrk áður en skráningu var breytt

Sjálfstæðisflokkurinn sagður kasta grjóti úr glerhúsi – Þáði sjálfur 167 milljónir í styrk áður en skráningu var breytt
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir auðlindir landsins hafa verið gefnar á silfurfati og fyrirtækjum sparaðir 85 milljarðar með dularfullri frestun – „Vegleg gjöf“

Segir auðlindir landsins hafa verið gefnar á silfurfati og fyrirtækjum sparaðir 85 milljarðar með dularfullri frestun – „Vegleg gjöf“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Nýr naflastrengur

Óttar Guðmundsson skrifar: Nýr naflastrengur
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Inga Sæland: Árásirnar á okkur grímulaust einelti – sjálfstæðismenn vilja fela eigin vandræði

Inga Sæland: Árásirnar á okkur grímulaust einelti – sjálfstæðismenn vilja fela eigin vandræði