Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, undrast að „vesældómi einnar manneskju“ sé slegið upp sem frétt á helstu miðlum landsins. Vísar verkalýðsleiðtoginn þar í fréttir ýmissa miðla um að Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður Eflingar, sé þeirrar skoðunar að komi til verkbanns atvinnurekenda eigi Efling að greiða félagsmönnum sínum laun úr verkfallssjóði sínum.
Alls eru Eflingar-meðlimir fleiri en 20.000 og því ljóst að standi verkbann yfir í einhvern tíma myndi verkfallssjóður Eflingar tæmast hratt og gæti þar með verkfallsvopn verkalýðsfélagsins orðið bitlítið í kjölfarið.
Sólveig Anna bendir á að Agnieszka eigi ekki sæti í Vinnudeildasjóði félagsins og virðist verkalýðsleiðtoginn því feginn. „Sem betur fer er stjórn Vinnudeilusjóðs Eflingar ekki mönnuð vitfirringum og strengjabrúðum sturlaðrar yfirséttar heldur fullorðnu fólki sem skilur ábyrgð sína í grafalvarlegu ástandi, hefndaraðgerð hinna ríkustu gagnvart þeim sem minnst eiga. Hefndaraðgerð sem afhjúpar með öllu grimmd og mannhatur þeirra sem telja sig eigendur alls á þessu landi.“+
Eins og alþjóð veit hefur Sólveig Anna átt í hatrammum átökum við Agnieszku sem og Ólöfu Helgu Adolfsdóttur, ritara Eflingar. Í vikunni var greint frá því að Ólöf Helga hefði höfðað mál fyrir Félagsdómi á hendur Alþýðusambandi Íslands (ASÍ), Samtökum atvinnulífsins (SA) og íslenska ríkinu og krafist þess að kosið verði um miðlunartillögu ríkissáttasemjara.
Um miðnætti í gær skrifaði Sólveig Anna harðorða færslu gegn þeim stöllum.
„Aumingja Agnieszka Ewa og Ólöf Helga. Þær ætluðu sér stóra hluti í verkalýðshreyfingunni. Ætlu„ðu að stýra Eflingu og sjálfu Alþýðusambandinu. Hvattar til dáða af SGS-formanna-hirðinni og hinum og þessum innan úr skrifstofuvirkinu. Og svo auðvitað íslensku auðvaldi og áróðursriti þess, Morgunblaðinu. Og hinum duglausu og erindislausu hægri-krötum sem skilja afskaplega fátt í veröldinni, efnahagslega réttlætisbaráttu vinnuaflsins minnst af öllu. Tvær konur, aðeins með hæfileika til eins, að láta etja sér á foraðið. Aftur og aftur,“ skrifaði Sólveig Anna.
Sagði hún þær breiða út boðskap fagnaðarerindis Halldórs Benjamíns um að forysta Eflingar ætti að hlýða „trylltri auðstéttinni“.
Hjólaði Sólveig Anna ennfremur í fjölmiðla fyrir að birta fréttir um skoðanir Agnieszku Ewu og Ólafar Helgu.
„Agnieszka Ewa og Ólöf Helga hafa það sem einhverskonar afsökun að vitið er ekki meira en guð gaf; hver er afsökun fjölmiðla að taka þátt í þessu aumkunarverða rugli?“