Efling – stéttarfélag lagði í dag, 30. janúar, fram stjórnsýslukæru til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins vegna svonefndrar miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram 26. janúar. Í kæru Eflingar er þess krafist að miðlunartillagan verði felld úr gildi.
Málsástæður kærunnar eru skortur á samráði við Eflingu, sem aðila að kjaradeilu, sem ber að viðhafa samkvæmt 27. og 28. grein laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Einnig er vísað til annarra lagaákvæða um samráðsskyldu og andmælarétt við töku íþyngjandi ákvarðana hins opinbera.
Þá er bent á skort á réttmæti, meðalhófi og jafnræði við töku ákvörðunarinnar, og er þar vísað bæði til stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Að lokum er bent á vanhæfi ríkissáttasemjara, sem vegna framgöngu sinnar getur ekki talist óvilhallur í deilunni líkt og áskilið er í 20. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Jafnframt er þess krafist að réttaráhrifum miðlunartillögunnar verði frestað meðan á meðferð kærunnar stendur. Telur Efling að ef málamiðlunartillagan nær fram að ganga verði tjónið óafturkræft.