Óhætt er að fullyrða að allt logi stafna á milli innan verkalýðshreyfingarinnar og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, miðpunktur þeirra hjaðningavíga. Eins og alþjóð veit er Sólveig og hennar stuðningsfólk afar ósátt við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins, vegna þess að Vilhjálmur kaus ásamt sínu fólki að ganga til kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og gera þar með samningustöðu Eflingar erfiðari.
Einn helsti stuðningsmaður Sólveigar er sósíalistinn Andri Sigurðsson, sem eitt sinn þáði ríflega verkatakalaun hjá Eflingu fyrir að setja upp heimasíðu félagsins, en málið vakti mikla athygli fjölmiðla. Eins og margir aðrir í ranni Sólveigar finnur hann Vilhjálmi flest til foráttu og upp úr sauð á samfélagsmiðlum í gær.
Þá hæddist Andri að Vilhjálmi með því að birta neðangreinda mynd á Facebook-síðu sinni.
Vilhjálmi Birgissyni var ekki skemmt yfir þessu skoti og sérstaklega því að Sólrún Anna setti hláturkall við færsluna. „Lágkúran nær nýjum hæðum,“ skrifaði Vilhjálmur í athugasemd og þá upphófust hvöss orðaskipti.
„Og árásir þínar á verkafólk undanfarið eru ekki lágkúra? Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að þú værir á launum hjá SA. Ef það er einhver sem á að skammast sín ert það þú fyrir svik þín við málstaðinn og verkafólk,“ skrifaði Andri.
Vilhjálmur greip þessi orð Andra á lofti og skaut af krafti tilbaka. „Nei Andri minn, ég er ekki á launum hjá SA en ert þú ekki búinn að vera „aðeins“ á launum hjá Eflingu?“ skrifaði Vilhjálmur.
Vilhjálmur átti í vök að verjast í rifrildinu en þá mætti Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, til leiks og tók til varna. Hann benti á að Vilhjálmur hafi barist fyrir formannskjöri Sólveigar í Eflingu þegar flestir hafi lagst gegn því og að hún hafi treyst á stuðning hans sem og stuðning Aðalsteins.
„Því miður er Sérsveit Eflingar í svörtu jökkunum ekki alveg með þetta á hreinu enda ekki með söguna á hreinu. Þau munu átta sig á því síðar, það þarf bara að gefa þeim smá tíma til að ná áttum,“ skrifaði Aðalsteinn og skaut svo fast á Andra og aðra stuðningsmenn Sólveigar.
„Þegar ég sé ykkur upphefja framkvæmdastjóra Afls [Sverrir Albertsson] sem hefur alla tíð unnið gegn Sollu og Eflingu verður mér óglatt. Hann barðist gegn kjöri Sollu á þingi SGS og ASÍ. Skoðaðu undirskriftarlistana? Meðan við Villi unnum 24/7 að því að koma Sollu að. Þess vegna er ég löngu hættur að skilja hvernig þið getið talað niður ykkar helstu stuðningsmenn í gegnum tíðina, er ekki allt í lagi? Við getum verið ósammála en tökumst á málefnalega. Ekki hrauna yfir ykkar bestu bandamenn. Hafðu í huga að bæði ég og Villi stöndum báðir mjög sterkt innan okkar stéttarfélaga. Reyndar leiðum við ein öflugustu stéttarfélög landsins svo vitnað sé í kannanir,“ skrifaði Aðalsteinn.