„Ísland er að stimpla sig inn í hugum ferðamanna sem dýrasta land í Evrópu – og þótt víðar væri leitað um álfur og alla kima heimskringlunnar. Og enda þótt dýrtíðin hér á landi hafi verið þekkt um nokkra árafjöld – og það langt út fyrir landsteinana – hefur óhófið í verðlagningunni jafnan verið í námunda við önnur dýrkeyptustu ferðamannalöndin í heimi hér. En nú er að verða breyting á. Eftir margra missera kreppu farsóttartímans er Ísland að stökkva fram úr öðrum dýrustu löndunum í græðgi og ógegnd, svo sem Noregi sem löngum hefur verið á pari við Ísland hvað okrið varðar,“ segir Sigmundur í upphafi leiðarans.
Hann bendir síðan á að Fréttablaðið hafi að undanförnu birt fréttir af verðlagningu á nokkrum af viðamestu þáttum ferðaþjónustunnar sem sé að verða svo há að önnur lönd séu að verða hálfdrættingar á við Ísland. Næturgisting á fjögurra stjörnu hóteli í Reykjavík kosti rúmlega tvöfalt meira en á sambærilegu hóteli í miðborg Osló. Það sama eigi við um bílaleigur.
„Forkólfar ferðaþjónustunnar á Íslandi verða að fara að hugsa sinn gang í þessum efnum. Er ætlunin að ógna orðspori Íslands sem áhugaverðs áætlunarstaðar með gegndarlausri verðbólgu, svo óstjórnlegri að fara verður að afskrifa stærstan hluta ferðamanna hingað til lands, sjálfan millitekjuhópinn, sem jafnan hefur verið hryggjarstykkið í túristaflórunni hér á landi?“ segir hann síðan og bætir við að vandinn sé víðtækari en þetta. Hér á landi sé þjónustan oft lélegri en gengur og gerist í þeim löndum sem verðleggja sig sem helstu lúxus-áfangastaði heimsins.
„Hjá nokkrum smærri bílaleigum landsins, þar sem lukkuriddararnir ráða ríkjum í skjótgróðahugsuninni einni saman, er verið að leigja bíla sem eru hátt í tíu ára gamlir og eknir 200 þúsund kílómetra, svo sem dæmin sanna. Og kunnar eru sögurnar af bilunum þessara bíla, þegar leigutakarnir hafa þurft að panta dráttarbíl og sitja svo sjálfir uppi með kostnaðinn af klúðrinu, á þriðja hundrað þúsund krónur. Þetta eru dæmisögurnar sem heyrast frá Íslandi. Og berast út um allan heim. Spurningin er þá líka sú hvenær komið verður að skuldadögum?“ segir hann að lokum.