Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna í Dagmálum Morgunblaðsins.
Bjarni segir meðal annars að landsmenn geti vel við unað við efnahagsástandið eftir heimsfaraldurinn. Þær efnahagsaðgerðir sem gripið hafi verið til hafi skipt sköpum um stöðuna núna. „Það er merkileg staðreynd að kaupmáttur fór vaxandi á Covid-árunum á Íslandi,“ segir Bjarni.
Hvað varðar verðbólgu segir hann hana vera næstlægsta hér á landi af öllum Evrópulöndum, það segir sína sögu að hans mati.
Hvað varðar kaupmátt heimilanna segir hann að hann hafi aukist um 10% á undanförnum árum. „Það eru forsendur til þess að verja þennan kaupmátt ef við látum ekki blekkjast af því að nafnlaunahækkun geti ein og sér fleytt okkur yfir verðbólguna,“ segir hann.
Hvað varðar sölu á hlut ríkisins í bönkunum sagði hann enn þeirrar skoðunar að rétt sé að ríkið minnki eignarhlut sinn í Íslandsbanka. „Ég myndi líka vilja selja um hlut í Landsbankanum þegar fram í sækir og markaðsaðstæður eru réttar þó að ég sé þeirrar skoðunar að ríkið geti vel farið þar með ráðandi hlut,“ segir hann einnig.