Í ræðu sinni gaf Trump í skyn að hann hyggist bjóða sig fram til forseta 2024. Eins og svo oft áður ræddi hann um forsetakosningarnar 2020, sem hann tapaði fyrir Joe Biden, og hélt áfram að koma með ósannindi um þær. „Þessar kosningar voru hörmung. Hneyksli fyrir landið okkar,“ sagði hann að sögn AP.
The Guardian segir að Trump hafi einnig haldið því fram að hann hafi sigrað í kosningunum. „Kannski verðum við bara að gera þetta aftur,“ sagði hann og gaf þar með enn einu sinni í skyn að hann hyggist bjóða sig fram 2024. Hann hefur þó ekki staðfest það né vísað því á bug.
Ráðgjafar hans eru sagðir hafa hvatt hann til að nota meira af ræðutíma sínum til að tala um stefnumál sín fyrir framtíðina og minna um kosningarnar 2020 að sögn AP. En Trump á greinilega erfitt með að slíta sig frá ósigrinum 2020.
The Guardian segir að ræðan í gær hafi átt að vera kynning á stefnu Repúblikana fyrir kosningar í nóvember en þá verður kosið til þings og um ýmis embætti í ríkjunum fimmtíu. En þess í stað var um hefðbundna Trump-ræðu að ræða þar sem hann lét gamminn geisa og réðst á Demókrata og lét ósannar fullyrðingar falla.