fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
EyjanFastir pennar

„Þú líka Brútus“

Eyjan
Þriðjudaginn 14. júní 2022 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Dýrfjörð, rafvirkjameistari, skrifar: 

Tilefni þessarar greinar er skipulögð árás  á mannorð og ævistarf Þórarins Tyrfingssonar.

Þess manns, sem tugþúsundir Íslendinga bera þakkarhug til fyrir að bjarga þeim og ástvinum þeirra úr angistardíki alkóhólistans

Árásin var tímasett þannig, að Þórarni var ekki fært að bera af sér sakir fyrir aðalfund SÁÁ, sem var á þriðjudegi. Á sunnudegi fyrir fundinn birti Morgunblaðið heilsíðu viðtal með níði um Þórarin.

Daginn fyrir aðafund var í hádegisfréttum í Ríkisútvarpi og Bylgjunni viðtal við lækni og sálfræðing SÁÁ.

Þar var ausið persónulegu níði yfir þórarinn, og fréttamenn hundsuðu þá sæmdarskildu, að leita andsvara þess, sem rægður var.

Þeir þekkja sannleikann

Í blaðagrein eftir tvo virta frumherja SÁÁ segir: „Þórarinn Tyrfingsson hefur lagt meira af mörkum til að breyta lífi fíkla og aðstandenda þeirra, en nokkur annar Íslendingur.“

Árið 1979 hóf Þórarinn að starfa hjá SÁÁ.  Þá var meðferðarstarfið á Silungapolli og á Sogni, og öll aðstaða mjög frumstæð. Undir handleiðslu hans hefur starfsemin aukist mjög.

Víkingameðferð, kvennameðferð, unglingameðferð.  Eldri karla meðferð, spilafíklameðferð og göngudeildameðferð eru dæmi um það.

Fyrstu ráðgjafar voru þeir, sem deildu eigin reynslu af meðferð í Bandaríkjunum. En meira þurfti til.

Þórarinn gerði því námsefni fyrir ráðgjafa. Hann stjórnaði þjálfun þeirra og kennslu.

Ráðgjafar fengu svo starfsréttindi sem heilbrigðisstétt árið 2006.

SÁÁ. náði þeim árángri undir hans stjórn,  að öðlast viðurkenningu á heimsvísu.

Fyrir hjálp Þórarins Tyrfingssonar hafa meir en tuttugu þúsund alkóhólistar og tugþúsundir aðstandenda þeirra náð að breyta lífi sínu til hins betra.

Fórnfýsi

Þórarinn tók vel á móti öllum fíklum og hafði afar næman skilning á hvað þyrfti til að ná nárangri.Hann gaf óspart af hvíldartíma sínum og fjölskyldu sinnar til að hjálpa veikum fíklum.

Þúsundir alkóhólista og tugþúsundir vandamanna bera hlýjan þakkarhug til Þórarins Tyrfingssonar fyrir, að hafa leitt þau fyrstu skrefin til heilbrigðara lífs.

Engum  er meira að þakka en Þórarni Tyrfingssyni, hvað stór hluti Íslendinga hefur náð að breyta lífi sínu til hins betra.  Rógberar, sem nú níða arf hans, og æru, og ævistarf.  Fá því aldrei breytt.

Íslenska þjóðin viðurkennir mikla þakkarskuld við Þórarinn Tyrfingsson

Sú mikla þakkarskuld varð ofraun æpandi rógberum og hælbítum, sem vilja öll yfirráð í SÁÁ .

Þeir urðu „Hersing“, sem iðkar persónuníð og lygar um Þórarinn. Til að sanna níðið birtu þeir lista með nafnlausum undirskriftum!! Í stað nafns var skrifað „Starfsmaður ,sem þorir ekki að  koma fram undir nafni af ótta við hefnd Þórarins“ Nafnalisti án nafna var enn eitt svindl stjórnenda SÁÁ.

Hælbítarnir fengu heilsíðu í Mogganum. Viðtöl í hádegisfréttum Ruv og Bylgjunnar.

Þar féllu ummæli um Þórarinn Tyrfingsson, sem voru svívirðileg ósannindi og mannorðsníð.

Þar var sagt í eyru þjóðarinnar: „Þórarinn, hann vinnur markvisst að því, að eyðileggja SÁÁ“.

Þegar Þórarinn sá liðið, sem að honum sótti, gat hann sagt eins og  Sesar  þegar hann leit hnífastungumenn sína: „Þú líka Brútus.“

Ég mun síðar lýsa „Hersingunni“ og  athöfnum hennar og aðför, að tilveru SÁÁ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Assange

Óttar Guðmundsson skrifar: Assange
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: „Krísa íslenskrar pólitíkur leikur íhaldið jafn grátt og ysta vinstrið“

Sigmundur Ernir skrifar: „Krísa íslenskrar pólitíkur leikur íhaldið jafn grátt og ysta vinstrið“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Frelsi listamanna

Óttar Guðmundsson skrifar: Frelsi listamanna
EyjanFastir pennar
21.06.2024

Steinunn Ólína skrifar: Kæra miðaldra Ísland

Steinunn Ólína skrifar: Kæra miðaldra Ísland
EyjanFastir pennar
20.06.2024

Þorsteinn Pálsson skrifar: Lítil auðnubót fyrir stofnanir lýðræðisins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Lítil auðnubót fyrir stofnanir lýðræðisins
EyjanFastir pennar
15.06.2024

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvalamálið

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvalamálið
EyjanFastir pennar
14.06.2024

Svarthöfði skrifar: Þess vegna er Viðreisn í bjórfylgi

Svarthöfði skrifar: Þess vegna er Viðreisn í bjórfylgi