Ríkisstjórnin tilkynnti í dag um ákvörðun sína að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og innleitt verði nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Þetta verði gert til að tryggja gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings.
Um er að ræða viðbragð við harðri gagnrýni á sölu ríkisins á 22,5 prósentum hlutar síns í Íslandsbanka í lokuðu útboði í mars. Ríkisstjórnin gengst við því að salan hafi ekki staðið undir væntingum stjórnvalda og að upp hafi komið spurningar, álitamál og gagnrýni um framkvæmdina.
Þess má geta að árið 2011, greindi Bjarni Benediktsson, frá þeirri skoðun sinni að Bankasýsla ríkisins sé óþörf. Þar hafði Bjarni enn ekki tekið við fjármálaráðuneytinu. Hann greindi þar frá því að aldrei hefðu átt að stofna Bankasýsluna heldur vista verkefnin í fjármálaráðuneytinu.
Nú hafa þingmenn stjórnarandstöðunnar sem og fleiri landsmenn brugðist við þessu útspili ríkisstjórnarinnar, en margir telja ríkisstjórnina vera að henda Bankasýslunni fyrir vagninn.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins, veltir fyrir sér hvort ríkisstjórnin hafi fengið tiltekinn málshátt um páskana.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að ef leggja þurfi niður Bankasýsluna þurfi einnig að leggja niður ráðherra.
„Nei sko, ráðherrar að henda embættismönnum undir rútuna fyrir klúður sem þau bera líka ábyrgð á,“ skrifar Björn á Facebook. Hann segir vandan ekki felast í lögum um Bankasýsluna heldur hvernig lögin voru framkvæmd. „Það er ekki hægt að varpa ábyrgð á þessu klúðri yfir á einhverjar lagatæknilegar forsendur.“
Björn segir málið mjög skýrt. Bankasýslunni var fengið að fylgjast með markaðsaðstæðum og ráðleggja ráðherra með söluna. Það hafi svo verið ráðherra sem setti upp markmið sölunnar og gert leiðbeiningar sem Bankasýslan fór svo eftir.
„Það er ekkert að þessu ferli almennt séð. Það getur hins vegar margt klúðrast. Ráðleggingar Bankasýslu geta verið lélegar. Forskrift ráðherra getur verið léleg. Söluferlið getur klúðrast og að lokum getur ráðherra brygðist ábyrgðarskyldu sinni. Þessu öllu er hægt að klúðra hvernig sem lögin eru. Spurningin er bara hvort það sé skýrt hver ber ábyrgð – sem það er. Þarna ber ráðherra ábyrgð á ákveðnum atriðum og Bankasýslan á öðrum atriðum. Klúðrið gerðist hjá báðum og þar af leiðandi ekki hægt að kenna bara öðrum um.
Ef það á að leggja niður bankasýsluna þá þarf að leggja niður ráðherra.“
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, veltir fyrir sér hvers vegna Bankasýslan sé látin taka höggið. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, tekur undir með henni og veltir fyrir hvort ekki hefði mátt ræða málið á ríkisstjórnarfundi.
Hefði ekki ráðherranefnd um efnahagsmál átt að fjalla um þetta? Hefði ekki mátt ræða þetta á ríkisstjórnarfundi? Eða eru formennirnir að vanda sig sérstaklega við að halda Lilju frá borðinu eftir ummælin hennar?
— Andrés Ingi (@andresingi) April 19, 2022
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir að þetta útspil sé beint upp úr „þöggunarhandbókinni.“
Flettum nú upp í þöggunarhandbókinni:
Hvar ætli “leggjum niður bankasýsluna” yfirlýsing ríkisstjórnarinnar eigi heima?
Ah já, # 2 Finna blóraböggul ✅
# 5 Smjörklípuaðferðin ✅
# 6 Afvegaleiðing umræðunnar ✅
# 7 Að endurskrifa söguna ✅
# 8 Gaslýsingar ✅— Þórhildur Sunna (@sunnago) April 19, 2022
Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar, segir að ábyrgð fjármálaráðherra í málinu sé ótvíræð og þar að auki bundin í lög. Hafi hann vanrækt sínar skyldur beri honum að gangast við þeirri handvömm og víkja úr embætti.
„Hafi hann með fullri meðvitund samþykkt hvert einasta skref sem tekið var, eins og honum ber að gera, ber hann einnig óskorðaða ábyrgð og ber að víkja úr embætti. Það er ljóst að almenningur hefur orðið fyrir óafturkræfu og mjög kostnaðarsömu tjóni vegna verka fjármálaráðherra. Það verður ríkisstjórnin að viðurkenna. Annað er óboðlegt.“
Ábyrgð fjàrmálaráðherra er ótvíræð og bundin í lög. Hafi hann vanrækt skyldur sínar um yfirferð yfir tillögur bankasýslu um söluna, aðferð og tilboð ber honum að gangast við þeirri handvömm og víkja úr embætti. 1/3https://t.co/8zxpjIkRJl
— Helga Vala Helgadóttir 🔴 (@Helgavalan) April 19, 2022
Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, veltir fyrir sér hvort að ríkisstjórnin og þá sérstaklega fjármálaráðherra ætli að firra sig allri ábyrgð í málinu.
Ríkisstjórnin vill leggja Bankasýsluna niður en hvað með ábyrgð ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega fjármálaráðherra í þessari sölu? Ætla þau bara að skauta fram hjá því? pic.twitter.com/bnq43rewVt
— Lenya Rún (@Lenyarun) April 19, 2022
Andrés Ingi Jónsson spyr hvort að ríkisstjórnin ætli að redda sér undan ábyrgð með kennitöluflakki.
Hann ritaði einnig Facebook-færslu um málið þar sem hann sagði að frekar en að axla ábyrgð á eigin klúðri séu formenn ríkisstjórnaflokkanna nú að henda bæði starfsfólki og stjórn Bankasýslunnar undir vagninn.
„Áfram þykist ríkisstjórnin geta stýrt því hvernig embættisverk ríkisstjórnarinnar eru rannsökuð.“
Andrés bendir á að aðeins formenn ríkisstjórnaflokkanna þriggja hafi komið að þessari ákvörðun.
„Á sama tíma falla niður ríkisstjórnarfundir í tvær vikur. Það eru tólf ráðherrar í ríkisstjórninni og 38 þingmenn í stjórnarflokkunum. Hafa þau ekkert um þetta að segja? Fylgja þau bara geðþótta foringjanna þriggja?“
Að leyfa Bjarna Ben að stofna Nýju-Bankasýsluna. Er þannig kennitöluflakk í alvöru það sem ríkisstjórnin reddi þeim undan ábyrgð á eigin klúðri?
— Andrés Ingi (@andresingi) April 19, 2022
Gísli Ólafsson, þingmaður Pírata, rifjar líka upp málsháttinn „Árinni kennir illur ræðari“.
Eftir "sérlega vel heppnaða bankasölu" er best að kenna Bankasýslunni um það hversu "vel" tókst til.
Greinilegt að málshátturinn "árinni kennir illur ræðari" var ekki í páskaeggjum formanna flokkana.
Auðveldara að fórna öðrum en að axla ábyrgð!https://t.co/r4ORzTet8w
— Gisli Olafsson (@gislio) April 19, 2022
Hrafn Jónsson, pistlahöfundur, telur ljóst að nú sé verið að kasta Bankasýslunni undir rútuna vegna klúðursins við Íslandsbankasöluna og þar með þurfi Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, ekki taka á sig ábyrgðina.
Þetta er aðvitað frekar brilliant lausn, kasta bankasýslunni bara undir rútuna. Fjármálaráðherra firraður ábyrgð og bara allir hressir, er það ekki? Enginn þarf að taka pólitíska ábyrgð, bara reka nokkra opinbera starfsmenn.https://t.co/8aKMCX4YB0
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) April 19, 2022
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, telur að með því að leggja niður Bankasýsluna sé ríkisstjórnin að viðurkenna að Íslandsbankasalan hafi verið klúður. Hann ritar um þetta í Facebook-hóp sósíalista.
„Ríkisstjórnin verður við einni af þremur kröfum mótmælanna á Austurvelli: Bankasýslan burt. Nú eru tvær eftir: Sölunnu á Íslandsbanka verði rift og Bjarna Benediktsson burt.
Með þessari yfirlýsingu viðurkennir ríkisstjórnin að salan var klúður. Það þarf að vinda ofan af því (sölunni rift) og sá ráðherra sem bar ábyrgð á klúðrinu þarf að víkja (Bjarna burt).
Er þeim alvara? Like… Segðu bara af þér Bjarni Benediktsson, okkur er fokk sama um Banksýslu ríkisins hahahahaha https://t.co/hIWwRIuFxk
— Hekla Elísabet (@HeklaElisabet) April 19, 2022
Það er náttúrulega ótrúlegt ef þessi atburðarrás endar með því að blautur draumur Bjarna rætist um að leggja niður Bankasýsluna. https://t.co/dLZWljHvXg pic.twitter.com/tmmaxb2HPQ
— óskar steinn (@oskasteinn) April 19, 2022
Mun nýja apparatið heita Kattaþvottastöðin?https://t.co/9R78h7feQ4
— Alexandra Briem (@OfurAlex) April 19, 2022
Óvænt plot-twist: eftir að Bankasýslan hefur verið lögð niður verður forstjórinn ráðinn til Eflingar.
— Árni Helgason (@arnih) April 19, 2022
Þetta er svo frábærlega fínpússað PR.
Uppáhaldsparturinn minn er talið um 'væntingar stjórnvalda' um ákveðin markmið sem stóðust ekki, eins og þau séu bara áhorfendur að þessu sem urðu fyrir sömu vonbrigðum með framkvæmdina og almenningur.https://t.co/25t79KkQJZ pic.twitter.com/LB0ktRrLnX
— Halldór Auðar Svansson 🇮🇸 🤝 🇺🇦 (@tharfagreinir) April 19, 2022
Held þið meinið leggja niður fjármálaráðherra pic.twitter.com/zk7T6Js1aC
— Jóna Þ. Pétursdóttir (@jonapeturs) April 19, 2022
Þetta bankasýslu-bix hjá ríkisstjórninni er svo mikið bakari-fyrir-smið-dæmi. Magnað að hafa verið í pólitík svona lengi og hafa bara zero skilning á pólitískri ábyrgð.
— Sunna Kristín (@sunnakh) April 19, 2022