Þann 10. febrúar síðastliðin lauk skiptum í þrotabúi Bombay ehf. en félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 22. september 2021 samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu fyrr í dag. Bombay ehf. var rekstrarfélag verslana Kjöt og Fisks sem körfuboltakapparnir Jón Arnór Stefánsson og Pavel Ermolinskij stofnuðu árið 2014. Fyrst í verslunarhúsnæði við Bergstaðastræti 14 og síðar útibú við Garðatorg í Garðabæ sem var skammlíft.
Verslunin við Bergstaðastræti 14 hætti rekstri þann 11.september 2018. „Þetta var stórt verkefni og búðarreksturinn var bara hluti af því. Hann var orðinn erfiður og við erum að sjálfsögðu að keppa við þessar stærri verslanir,“ sagði Pavel í samtali við Fréttablaðið á sínum tíma. „Okkur tókst samt að mynda þennan skemmtilega hverfisfíling og fólk sem byrjaði sem kúnnar eru vinir okkar í dag. Það er það sem situr eftir.“
Í auglýsingu Lögbirtingablaðsins kemur fram að lýstar kröfur hafi verið kr. 46.735.352 en alls greiddust rúmar 1,5 milljónir króna upp í almennar kröfur yfir kr. 1.000.000 eða 5,3525 hundraðshlutar.
Jón Arnór og Pavel spiluðu báðir körfbolta á fullu meðfram rekstri verslana sinna. Jón Arnór lagði síðan skónna á hilluna eftir síðasta tímabil en Pavel spilar enn með liði Vals í Subway-deildinni.