Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, Hildur Björnsdóttir, veltir því fyrir sér hvort meirihlutinn í borginni hafi ekkert lært af síðasta vetri. Þá hafi borgin upplifað samskonar snjóþunga og á sama tíma samskonar úrræðaleysi borgaryfirvalda. Nú nokkrum mánuðum síðar sé sami vandi kominn upp en engar framfarir orðið á viðbragði borgarinnar.
Hildur skrifar um þetta á Facebook.
„Síðustu daga hefur líf og starfsemi í borginni orðið fyrir töluverðu raski vegna snjóþyngsla. Aðstæðurnar eru ekkert einsdæmi.
Fyrr á þessu ári upplifðum við samskonar snjóþunga – og samskonar úrræðaleysi borgaryfirvalda. Þá lýstu starfsmenn vetrarþjónustu borgarinnar sig „fullsadda“ af hringlandahætti, þekkingarleysi og virðingarleysi borgaryfirvalda í sinn garð. Þeim væri ætlað að sinna krefjandi verkefnum við ómögulegar aðstæður – vanbúnir og undirmannaðir við slæmt skipulag.
Einungis nokkrum mánuðum síðar stöndum við frammi fyrir sambærilegum vanda en viðbragðið hefur ekki tekið framförum. Lærði meirihlutinn ekkert af síðasta vetri?
Það er grundvallaratriði að fólk komist greiðlega leiðar sinnar í borginni. Við búum í höfuðborg á norðurhjara veraldar og þjónusta borgarinnar á að gera ráð fyrir snjóþungum vetrum. Gerum betur.“