fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Eyjan

Skiptum lokið eftir sex ár – 984 milljón króna gjaldþrot eins elsta verktakafyrirtækis landsins

Eyjan
Miðvikudaginn 23. nóvember 2022 11:16

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skiptum er lokið í verktakafyrirtæknu Sveinbjörn Sigurðsson hf., betur þekkt sem SS verktaki.  Fyrirtækið hafði verið starfrækt í meira en sjötíu ár þegar það var úrskurðað gjaldþrota í mars árið 2016 og var því eitt elsta starfandi byggingaverktakafyrirtæki landsins.

Sveinbjörn Sigurðsson byggingameistari stofnaði fyrirtækið árið 1942, en SS verktaki kom meðal annars að byggingu Dvalarheimilis aldraðra sjómanna við Hrafnistu, Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal auk Borgarleikhússins.

Sveinbjörn, stofnandi félagsins, dró sig í hlé árið 1990 en þrír synir hans tóku þá við rekstri SS verktaka en mikill rekstrarvandi knúði fyrirtækið loks í þrot.

Skiptalokin voru auglýst í Lögbirtingablaðinu í morgun en þeim lauk þann 4. ágúst síðastliðinn. Lýstar kröfur námu alls 984.543.935 krónum en ekki er gefið upp verðmæti þeirra eigna sem fannst í búinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Hönnuð atburðarás og einkennileg framkoma Gylfa

Orðið á götunni: Hönnuð atburðarás og einkennileg framkoma Gylfa
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ragna hættir hjá Alþingi í sumar – Ráðin forstjóri Landsnets

Ragna hættir hjá Alþingi í sumar – Ráðin forstjóri Landsnets
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Hvernig verður umhorfs í Sjálfstæðisflokknum eftir landsfund? Ófriðarbál eða friður?

Orðið á götunni: Hvernig verður umhorfs í Sjálfstæðisflokknum eftir landsfund? Ófriðarbál eða friður?