fbpx
Fimmtudagur 10.október 2024
Eyjan

Ólafur Þór ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 11. október 2022 10:42

Ólafur Þór Jóhannesson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY. Hann tekur við starfinu af Þóru Eggertsdóttur og hefur störf í byrjun nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá PLAY.

Ólafur Þór gegndi starfi forstjóra, aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs Skeljungs hf. á árunum 2019-2022. Þar áður gegndi hann ýmsum stjórnunarstöðum í atvinnulífinu, hefur verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi, sinnt stjórnarsetu í nokkrum félögum og þá var hann endurskoðandi og meðeigandi hjá PricewaterhouseCoopers. Ólafur Þór sinnti jafnframt kennslu við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og er löggiltur endurskoðandi.

Ólafur Þór: „Ég er þakklátur fyrir það tækifæri að fá að vera þátttakandi í áframhaldandi uppbyggingu PLAY sem er að mínu mati á mjög áhugaverðum stað. Ég hlakka til að fá að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem eru framundan og vonast til þess að reynsla mín og þekking úr ólíkum atvinnugreinum komi félaginu að gagni.“

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, segir um ráðninguna: „Það er okkur einstök ánægja að kynna Ólaf Þór til leiks enda mikill fengur að honum fyrir félagið. Hann býr yfir gífurlegri reynslu úr fjölbreyttum áttum og er góð viðbót við sterkan stjórnendahóp PLAY. Nú þegar hann tekur við okkar sterka fjármálateymi getum við stigið ákveðnum skrefum fram á við og haldið áfram að hækka flugið. Ég býð Ólaf Þór hjartanlega velkominn um borð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar – Fjölmiðlamálið og eyðilegging stjórnmálanna

Björn Jón skrifar – Fjölmiðlamálið og eyðilegging stjórnmálanna
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Gunnarsson: Samfylkingin popúlískur flokkur sem ber ábyrð á orkuskorti og tugmilljarða tjóni þjóðarinnar

Jón Gunnarsson: Samfylkingin popúlískur flokkur sem ber ábyrð á orkuskorti og tugmilljarða tjóni þjóðarinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitískustu ummæli aldarinnar á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitískustu ummæli aldarinnar á Íslandi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gunnarsson: Brjóta hefði átt upp stjórnarsamstarfið 2021 – aftur tækifæri þegar Katrín sagði af sér

Jón Gunnarsson: Brjóta hefði átt upp stjórnarsamstarfið 2021 – aftur tækifæri þegar Katrín sagði af sér
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björn kemur Þórdísi til varnar og sakar Frosta um delluyfirlýsingar

Björn kemur Þórdísi til varnar og sakar Frosta um delluyfirlýsingar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðbrandur Einarsson skrifar: Vinnuþrælar verðbólgunnar

Guðbrandur Einarsson skrifar: Vinnuþrælar verðbólgunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fer hörðum orðum um Þórdísi – „Einn versti utanríkisráðherra sem við höfum haft“

Fer hörðum orðum um Þórdísi – „Einn versti utanríkisráðherra sem við höfum haft“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr vill klára viðræðurnar við ESB og leyfa þjóðinni að kjósa

Jón Gnarr vill klára viðræðurnar við ESB og leyfa þjóðinni að kjósa