fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

„Það er með öllu óforsvaranlegt að stjórnvöld sýni vandanum svo lítinn áhuga“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 22. september 2022 10:30

Eva Sjöfn Helgadóttir - Mynd/Píratar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku kom út skýrsla um meðferðarheimilið í Varpholti og á Laugalandi en skýrslan staðfesti að brotið hefði verið gegn meirihluta unginglsstúlkna sem dvöldu á heimilinu. Eva Sjöfn Helgadóttir, varaþingmaður Pírata og barnaverndarstarfsmaður, gerir málið að umfjöllunarefni í pistli sem birtist á Vísi í dag en í honum viðrar hún áhyggjur sínar af barnaverndarkerfum sem eru að hennar sögn bæði fjársvelt og vanrækt.

„Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í æsku á vegum barnaverndar. Laugaland átti að vera þeim öruggur staður. Að upplifun þeirra hafi verið sem skyldi er óafsakanlegt. Það er nauðsynlegt að samfélagið allt læri af þessari reynslu og tryggi að slíkt geti aldrei aftur átt sér stað,“ segir Eva í upphafi pistilsins.

Eva segir að ólíðandi sé að barnaverndaryfirvöld standi nú frammi fyrir úrræðaskorti. „Það er þó ekki aðeins skorturinn sem er slæmur – heldur hafa úrræðin mörg hver ekki þróast mikið síðustu tíu til tuttugu árin,“ segir hún svo.

„Barnaverndarkerfið er enn að kljást við skilningsleysi stjórnvalda á mikilvægi þess að veita viðeigandi úrræði hverju sinni. Börn með flókinn geð- og hegðunarvanda eru vanrækt af stjórnvöldum, þrátt fyrir að það sé skýrt hversu mikilvægt það er að setja þau í forgang og tryggja að úrræði séu tiltæk og ekki yfirfull.“

Fyrr á árinu beindi Eva fyrirspurn til Ásmundar Einars Daða­sonar, mennta- og barnamálaráðherra, á Alþingi. „Ég spurði hvaða fjármunum hefði verið varið til þess að tryggja að sveitarfélög hafi yfir fullnægjandi úrræðum að ráða – og svarið sem barst staðfesti áhyggjur mínar.“

Svarið sem Eva fékk var eftirfarandi: „Engar fjárveitingar hafa runnið frá ríki til sveitarfélaga sem er sérstaklega ætlað að koma á fót úrræðum fyrir börn vegna verkefna sem eru á ábyrgð sveitarfélaga.“

Eva segir að fjársvelt og vanrækt barnaverndarkerfi séu ekki barnaverndarkerfi nema að nafninu til. „Það getur ekki sinnt skyldu sinni og tilgangi, sem er að vernda börn. Þess vegna verðum við að leggja mun meiri orku og fjármagn í að sinna fjölskyldum og börnum í barnaverndarkerfinu,“ segir hún.

„Það er ekki boðlegt að hér á landi séum við ekki að tryggja að börn í mjög viðkvæmri stöðu fái bestu þjónustu sem völ er á.“

Þá segir Eva að vandinn sé augljós og viðvarandi en þrátt fyrir það séu viðbrögðin og viljinn hjá stjórnvöldum lítil sem engin. „Í ljósi þeirra átakanlegu reynslusagna sem við heyrum í dag frá einstaklingum sem dvöldu á meðferðarheimilum forðum er deginum ljósara hvað er í húfi þegar við tölum um að efla og fjölga úrræðum í kerfinu: það snýst um að tryggja að börn hljóti þá vernd sem þau þurfa til þess að þroskast og dafna í öruggu og heilsusamlegu umhverfi,“ segir hún.

„Það er með öllu óforsvaranlegt að stjórnvöld sýni vandanum svo lítinn áhuga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur