fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Heilsa frystir verð á vörum til að berjast gegn verðbólgu – Skora á aðra að taka þátt

Eyjan
Fimmtudaginn 1. september 2022 10:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilsa ehf. hefur ákveðið að fyrsta frá og með deginum í dag verð á vítamín- og bætiefnalínu sinni, sem seld eru undir merki Gula miðans.

Um er að ræða rúmlega 50 vörunúmer og ætlar Heilsa að halda veðrinu óbreyttu fram að áramótum til að styðja seljendur vörumerkisins í því að halda verðhækkunum í lágmarki innan sinna verslana og þannig sporna við frekari verðbólgu.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Við teljum það vera skyldu okkar að leggja baráttunni gegn verðhækkunum lið. Heilsa Íslendinga skiptir okkur öllu máli og nú, þegar við finnum að fólk fer að halda að sér höndum, viljum við sjá til þess að slíkt ástand bitni ekki á heilsu fólks,“ segir Guðmundur Halldór Björnsson, sviðsstjóri heildsölu hjá Heilsu.

Þar með slæst Heilsa í hóp fyrirtækja sem ætla að halda vöruverði óbreyttu næstu mánuði og skorar Guðmundur á önnur fyrirtæki, sem hafi til þess burði, að gera slíkt hið sama.  

 „Við finnum öll hvernig verðbólgan er farin að hafa áhrif á heimilisbókhaldið. Stök fyrirtæki eða einstaklingar ná ekki að vinna bug á verðbólgunni, en með samhentu átaki getum við lagt baráttunni lið. Ef við tökum öll lítil skref í átt að sama markmiði þá er líklegra að við náum árangri.“

Fyrir viku síðan greind Krónan frá því að matvöruverslanir þeirra muni frysta verð á 240 vörum sem seld eru undir vörumerkjum Krónunnar og First Price. Þetta var eins gert til að sporna gegn verðbólgunni. 

Sjá einnig: Krónan frystir verð á 240 vörutegundum til að berjast gegn verðbólgunni

Heilsa ehf. er elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á heilsusamlegum og lífrænum matvörum, fæðubótarefnum, almennum og lífrænum snyrtivörum sem og vistvænum hreingerningarvörum. Guli miðinn er breið vítamín- og bætiefnalína sem hefur verið pökkuð og seld á Íslandi í yfir 30 ár. Undir Gula miðanum eru rúmlega 50 vörunúmer. Vörurnar má nálgast hjá rúmlega 30 verslana- og lyfsölukeðjum um land allt. Sjá meira um Gula miðann hér: https://gulimidinn.is/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur