Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,75 prósent sem gerir það að verkum að stýrivextir verða nú 5,5% eftir þessa hækkun. Þessi hækkun verður kynnt á blaðamannafundi sem hefst innans kamms.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir:
„Samkvæmt uppfærðri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í ágústhefti Peningamála eru horfur á tæplega 6% hagvexti í ár sem er 1,3 prósentum meiri vöxtur en spáð var í maí. Stafar það einkum af þróttmeiri einkaneyslu og hraðari bata í ferðaþjónustu. Störfum heldur áfram að fjölga og atvinnuleysi að minnka og meiri spenna hefur myndast í þjóðarbúinu en áætlað var í maí.
Verðbólguhorfur hafa áfram versnað. Verðbólga jókst í júlí og mældist 9,9%. Gert er ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok ársins í tæplega 11%. Verri verðbólguhorfur endurspegla kröftugri umsvif í þjóðarbúskapnum en gert var ráð fyrir í maí og þrálátari hækkanir á húsnæðismarkaði auk meiri alþjóðlegrar verðbólgu. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað enn frekar á flesta mælikvarða.
Peningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara“