Forsætisráðherratíð Boris Johnson gæti verið lokið í kjölfar afsagnar tveggja ráðherra úr ríkisstjórn hans í gærkvöldi. Fleiri þungavigtarmenn úr þingflokki Íhaldsmanna hafa sagt af sér í kjölfarið og eru margir á því Johnson sé ekki stætt á öðru en að segja af sér.
Ráðherrarnir sem sögðu af sér voru þeir Sajid Javid, heilbrigðisráðherra, og Rishi Sunak, fjármálaráðherra. Báðir sögðust þeir ekki lengur get stutt Johnson áfram og töldu afsögn sýna nauðsynlega til þess að þrýsta á brotthvarf Johnson.
Ákvörðun ráðherranna tengist meðhöndlun forsætisráðherrann á máli Chris Pincher, varaþingflokksformanni Íhaldsflokksins, sem sagði af sér á dögunum eftir að hafa drukkið of mikið í samkvæmi og „gert sjálfan sig og aðra að athlægi“. Í kjölfarið fór af stað umræða um hví Pincher hafi yfir höfuð verið skipaður í embætti sitt af Johnson en margar sögur hafa verið af óviðeigandi hegðun hans í gegnum árin.
Forsætisráðherrann hefur haldið því fram að hann hafi ekki vitað um fortíð Pincher en dró síðan í land með þær fullyrðingar sem gerði málið allt hið vandræðalegasta.
Segja má því að meðhöndlunin á máli Pincher hafi verið dropinn sem fyllti mælinn hjá samstarfsmönnum Johnson sem hafði fyrir mánuði síðan staðið af sér vantrauststillögu í breska þingingu. Meirihluti þingmanna breska Íhaldsflokksins kaus að fella vantrauststillögu á Johnson en engu að síður kusu 148 þingmenn með henni.
Því blasir við að Boris Johnson stóð höllum fæti í embætti formanns Íhaldsflokksins og forsætisráðherra landsins en vendingar gærdagsins gætu orðið til þess að hrökklist úr embætti.