Ritdeila er sprottin upp á milli þeirra Ólafs Þ. Harðarssonar stjórnmálafræðiprófessors og Björn Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, en Björn sakar Ólaf um pólitískan spuna og áróður gegn VG.
Tilefnið er viðtal RÚV við Ólaf þar sem hann skýrir fylgistap VG í skoðanakönnunum, en ný könnun sýnir fylgi flokksins undir átta prósentum. Björn ritar „frétt“ innan gæsalappa og segir að hér sé um spuna að ræða þar sem Ólafur næri draumsýn fréttamannsins RÚV um að VG slíti stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokk og auki við það fylgi sitt.
Björn skrifar á vef sinn:
„Á ruv.is veltir fréttamaðurinn upp þeirri draumsýn að VG „gæti aukið fylgi sitt með því að slíta stjórnarsamstarfinu núna á miðju tímabili?“
Ólafur Þ. Harðarson svarar:
„Hann gæti hugsanlega aukið fylgi sitt með því. Það er ekkert ólíklegt. Hins vegar þá er það nú kannski ekki hyggilegt fyrir flokk sem vill vera ábyrgur að slíta stjórnarsamstarfi bara út af hreyfingum í skoðanakönnunum.“
Öll þessi „frétt“ með prófessornum fyrrverandi er ekkert annað en spuni til að halda lífi í hannaðri atburðarás sem er reist á þrá eftir að sprengja ríkisstjórnina og koma höggi á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Ekki er ólíklegt að þetta sé jafnframt liður í að búa í haginn fyrir valdatöku Dags B. Eggertssonar í Samfylkingunni. Aðferðir af þessu tagi einkenna feril hans í stjórnmálum. Beitt er útlilokunum sem eru oftar en ekki reistar á aðför að einstaklingum enda eru málefni aukaatriði í valdabröltinu.“
Ólafur fer yfir málið á Facebook-síðu sinni. Hann segist engan veginn fordæma núverandi stjórnarsamstarf enda sé það ekki hans hlutverk að vera pólitískur dómari. Hins vegar sé núverandi ríkisstjórnarsamsetning óvenjuleg í Vestur-Evrópu.
„Það er ofur eðlilegt að af hugmyndafræðilegum ástæðum pirrist ýmsir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks yfir því að flokkurinn vinni með vinstri flokknum VG – og að ýmsir stuðningsmenn VG pirrist yfir því að flokkurinn vinni með hægri sinnuðum Sjálfstæðisflokki,“ segir Ólafur.
Ólafur er ósáttur við þær einkunnir sem Björn gefur honum og að vera sakaður um óheilindi:
„Ég geri enga athugasemd við það að menn séu ósammála greiningu minni. Og fagna því ef henni er andmælt með málefnalegum hætti. Það gerir fólk í vísindum.
Mér finnst hins vegar lakara þegar mér eru gerð upp óheilindi og annarlegar hvatir – án nokkurs rökstuðnings. Fylgismenn Trumps í Bandaríkjunum gera reyndar lítið úr vísindum og staðreyndum – og hella svívirðingum yfir vísindamenn sem komast að niðurstöðum sem passa ekki við trúarkreddur þeirra. Sem betur fer hafa frekar fáir Íslendingar verið á þeim buxunum – a.m.k. hingað til …“