„Davíð Þór… er mjög triggeruð. Ég þekki svona ofbeldismenn, hef elskað þá og búið með þeim og skilið við þá. Megi þeir finna frið í sálinni,“ segir Líf Magneudóttir borgarfulltrúi í tísti á Twitter í gær. Líf hefur nú beðist afsökunar á þessum skrifum.
Tilefnið virðast vera ummæli Davíðs Þórs í viðtali við mbl.is, ummæli sem komu illa út og Davíð Þór hefur beðist afsökunar á.
Upphafið að þessum væringum má rekja til mjög harkalegra ummæla sem Davíð Þór viðhafði um ríkisstjórnina vegna stefnu í málefnum flóttamanna en til stendur að vísa um 300 manns úr landi á næstunni. Sumt af þessu fólki hefur fest rætur hér enda tíðkuðust brottvísanir ekki í Covid-faraldrinum. Í eldfimri Facebook-færslu sinni sagði Davíð Þór að það væri til sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem seldi sálu sína fyrir völd.
Fékk Davíð Þór áminningu frá biskupi vegna ummælanna en fjölmargir hafa snúist honum til varnar og sagt hann hafa haft fullt tilefni til þessara skrifa. Í umfjöllun um þetta hefur verið dregið fram að Davíð Þór og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, voru par fyrir tveimur áratugum, eða svo.
Davíð Þór fór yfir málið í viðtali við mbl.is í gær. Varðandi samband hans við forsætisráðherra sagði hann:
„Umræðan ætti að snúast um það hvernig við sem samfélag komum fram við okkar minnstu bræður og systur. Ef að einhverjum finnst að sú umræða eigi að snúast um það hvernig tilfinningalífi mínu var háttað fyrir 20 árum…jah þá vitum við hversu stór sálin í því fólki er.“
Hann bætti síðan við: „Þar fyrir utan þá bjó ég aldrei með forsætisráðherra Íslands, það var allt önnur manneskja.“
Davíð Þór sá ástæðu til að biðjast afsökunar á þessum ummælum og segir í Facebook-færslu:
„Mig langar að biðjast afsökunar á orðum sem höfð eru eftir mér á mbl.is. Blaðamaður hringdi í mig þar sem ég var önnum kafinn við að koma börnum mínum í háttinn. Við töluðum saman í tvær mínútur. Í lok spjallsins fékk ég spurningu sem ég taldi ekki koma málinu neitt við og lét eina vanhugsaða setningu falla í kjölfarið. Auðvitað var henni slegið upp í fyrirsögn en ekki það sem ég lagði áherslu á í okkar stutta spjalli að ætti að vera það sem málið snerist um. Ég iðrast þessara orða og tek þau hér með aftur. Umræðan á ekki að snúast um persónur, en ég lét blaðamanninn slá mig út af laginu og niður á það plan.“
Svo virðist sem þessi ummæli hafi verið tilefni hinna harkalegu skrifa Lífar um Davíð Þór í gær. Á meðan þessi frétt var í vinnslu baðst Líf afsökunar á tístinu með þessu tísti:
„Eyddi tísti sem var mjög illa tímasett … biðst afsökunar á því.“
Sú spurning vaknar hvort allar tímasetningar séu ekki slæmar fyrir það að fullyrða að Davíð Þór Jónsson sé ofbeldismaður.