Helga Vala Helgadóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar deildi þræði á Twitter-síðu sinni í morgun þar sem hún segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafa farið með rangt mál í viðtali hans í morgunútvarpi Rásar 2. Þar segir hún hann hafa sagt að flóttafólk sem hefur fengið stöðu í Grikklandi njóti sömu réttinda og aðrir íbúar Grikklands og geti ferðast og sótt um vinnu.
„Seinna vildi hann meina að það að fólk sækir ekki hér um vinnu heldur hæli sé vandamál sem festi það í stöðu umsækjenda um vernd og klikkir svo út með að kenna verkalýðshreyfingunni um að ekki sé verið að heimila þessum hópi að sækja hér um vinnu. Þetta er líka alrangt.“ segir Helga.
Hún segir einnig að það sé hægðarleikur að veita þeim sem hér leituðu verndar dvalarleyfi og að það sé rangt hjá dómsmálaráðherra að Dyflinnarlöggjöfin skyldi brottvísunina. Hún segir að Dyflinnarlöggjöfin veiti heimild til þess en ekki skyldu. Jafnframt að það sé pólitísk ákvörðun ríkisstjórnarinnar að veita þeim hér skjól eða ekki.
„Það vald hefur ríkisstjórnin og þá skiptir máli að þora að taka þá pólitísku ákvörðun. Hafa ráðherrar í ríkisstjórn Íslands það þor?“
Í viðtali við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun vildi ráðherra meina að flóttafólk sem hefur fengið stöðu í Grikklandi, nyti sömu réttinda og aðrir íbúar Grikklands og geti því ferðast um Evrópu og sótt um vinnu.
Það er alrangt. 1/6 pic.twitter.com/nTh2M2j8B1— Helga Vala Helgadóttir 🔴 (@Helgavalan) May 24, 2022