Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir í færslu á Facebook að hún vilji halda samstarfi við Pírata og Samfylkinguna og bjóða Framsóknarflokknum til formlegra viðræðna um myndun meirihluta. Ekki eigi að líta til annarra kosta. Áður hafa Sósíalistar og Píratar útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokk og því virðist hann í augnablikinu vera útilokaður frá meirihlutasamstarfi.
Þetta er að minnsta kosti skoðun oddvita Framsóknarflokksins, Einars Þorsteinssonar, en hann ræddi málið við vef Fréttablaðsins í dag.
„Sjálfstæðisflokknum hefur greinilega ekki tekist að fá Viðreisn og Flokk fólksins til viðræða eins og hann vildi. VG ætlar ekki að taka þátt og þá sýnist mér þetta vera eini mögulegi meirihlutinn. Ég ætla aðeins að melta þetta og ræða við mitt bakland um næstu skref,“ segir Einar.
Einar vildi ekki tjá sig um það við Fréttablaðið hvort honum litist vel á mögulegt samstarf við Viðreisn, Samfylkingu og Pírata. „Við höfum sagt frá byrjun að við erum tilbúin að vinna bæði til hægri og til vinstri og við teljum okkur fært að knýja fram breytingar fyrir borgarbúa á hvort veginn sem er. Hins vegar er valkostunum greinilega að fækka og það virðist ekki hægt að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokki núna þegar VG og Viðreisn eru búin að lýsa því yfir að þau ætli ekki að láta á það reyna. Þá ætla ég að fara með þessa stöðu og ræða við mitt bakland. Ég býst við að boða til fundar hjá okkur í Framsókn á morgun til að ræða stöðuna.“