fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Segja tíma kominn á félagshyggjustjórn í borginni – „Hægri flokkarnir töpuðu í kosningunum“

Eyjan
Mánudaginn 16. maí 2022 17:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sósíalistaflokkurinn í Reykjavík segir tíma kominn á félagshyggjustjórn í borginni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu þar sem segir að hægri flokkar hafi tapað í kosningunum. Hægri flokkar hafi tapað fjórum fulltrúum á meðan Framsókn græddi fjóra og megi úr því lesa að fulltrúarnir hafi færst frá hægri til vinstri. Nýr meirihluti þurfi að endurspegla þessa sveiflu – þ.e. vera frá miðjunni til vinstri, í meirihluta um félagshyggju og mannúð.

Í yfirlýsingu segir að meirihlutinn í borginni hafi fallið í kosningunum og sé því mikilvægt að nýr meirihluti verði byggður á nýjum grunni en ekki á rústum meirihlutans sem féll.

„Meirihlutinn féll í kosningunum á laugardaginn. Eins og reyndar í síðustu og þar síðustu kosningum. Það er því mikilvægt að næsti meirihluti verði á nýjum grunni en ekki enn ein framlengingin á föllnum meirihluta. Nýr meirihluti ætti að leggja áherslu á félagslega innviði borgarinnar, velferð og mannúð. Augljóst er að uppbygging félagslegs húsnæðis yrði fyrsta verkefni nýs meirihluta.  Kosningasigur Framsóknar opnar möguleika á meirihluta sem byggir á sama grunni og Reykjavíkurlistinn á sínum tíma, félagshyggjustjórn frá miðju til vinstri. Á fyrstu árum sínum vann R-listinn stórafrek í leikskólamálum. Nú vantar sambærilegt átak í húsnæðismálum. Það verður ekki gert nema af félagshyggjuflokkunum.“

Sósíalistar telja einnig ljóst að hægri flokkarnir hafi tapað í kosningunum. Þetta sjáist vel þegar horft er til þess hvaða flokkar töpuðu fulltrúum og hvaða flokkar græddu fulltrúa.

„Hægri flokkarnir töpuðu í kosningunum. Miðflokkurinn féll úr borgarstjórn, Sjálfstæðisflokkurinn tapaði tveimur mönnum og Viðreisn einum. Framsókn fékk alla þessa fjóra, svo segja má að þessir fulltrúar hafi færst frá hægri yfir á miðjuna. Vinstra megin unnu Sósíalistar og Píratar sitthvorn manninn af Samfylkingunni. Þar færðist fylgið til vinstri og meiri róttækni. Eðlileg viðbrögð við þessu er að mynda meirihluta sem endurspeglar þessa sveiflu, frá miðju til vinstri. Þessi sveifla kallar á meirihluta um félagshyggju og mannúð. Nýr meirihluti ætti að móta metnaðarfulla áætlun um húsnæðisuppbyggingu á félagslegum grunni, styrkingu félagslegra innviða og aukna mannúð, nýtt upphaf í borginni.“

Sósíalistar rifja upp að með Reykjavíkurlistanum á sínum tíma hafi nýr andi komið til Reykjavíkur eftir áratuga „þrúgandi stjórn“ Sjálfstæðisflokks.

„Borgarbúar kunnu að meta breytinguna og tryggðu R-listanum meirihluta í þrjú kjörtímabil. Síðan hafa borgarbúar fellt alla meirihluta í borginni og borgarmálin einkennst af ósætti, minnkandi trausti og æ lélegri kosningaþátttöku. Nýr meirihluti þarf að enda þetta tímabil og hefja nýjan kafla í sögu borgarinnar. Það var niðurstaða kosninganna á laugardaginn. Þær kalla á nýjan meirihluta sem byggir á félagshyggju og mannúð, endurreisir traust meðal borgarbúa með því að byggja upp manneskjulegri borg þar sem allir fá að njóta sín.  Horfum til framtíðar og byrjum að byggja upp borgina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur