Kosningabaráttur hafa breyst til muna síðan samfélagsmiðlarnir komu til sögunnar. Þegar styttast fer í kosningar fara auglýsingarnar að flæða inn á alla helstu samfélagsmiðlanna og þá sérstaklega Facebook. Það er þó misjafnt hversu miklu stjórnmálaflokkarnir eru tilbúnir að eyða í auglýsingar á Facebook – sumir treysta kannski ennþá á gömlu góðu skiltin fram yfir þessa nýmóðins tækni.
Það getur reynst ansi flókið að komast að því hvað flokkarnir eyða samtals miklu í skiltin sín en heldur auðveldara er að sjá hvað þeir eyða í Facebook auglýsingar. Þær upplýsingar eru nefnilega gefnar út af Meta, fyrirtækinu sem stýrir Facebook.
Í upplýsingum frá þeim má sjá að flokkarnir eyddu ágætis upphæðum til að auglýsa á Facebook. Flokkur fólksins er þó með þá Facebook-síðu sem eyddi mestu í auglýsingar frá 12. apríl til 11. maí. Síðan þeirra keypti auglýsingar fyrir tæplega eina og hálfa milljón á þessu tímabili. Næstmestu eyddi Facebook-síða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, 1,15 milljón.
Facebook-síða Samfylkingarinnar í Reykjavík fylgir svo fast á eftir en hún keypti auglýsingar fyrir 973 þúsund. Framsókn í Reykjavík keypti auglýsingar fyrir 656 þúsund krónur og Vinstri hreyfingin – grænt framboð eyddi 580 þúsund krónum. Píratar notuðu 525 þúsund krónur í sínar Facebook-auglýsingar og Sósíalistaflokkurinn notaði 435 þúsund.
Hér fyrir neðan má sjá hvað Facebook-síður framboðanna í Reykjavík eyddu miklu:
Hér fyrir neðan má sjá hvað Facebook-síður stjórnmálaflokkanna sjálfra eyddu miklu:
Ekki er hægt að sjá strax hversu miklu flokkarnir eyddu á síðustu þremur dögunum fyrir kosningar þar sem þær upplýsingar hafa ekki enn verið gefnar út. Líklega fóru þó margir að spýta í lófana þá þegar kemur að auglýsingum og verður spennandi að sjá þegar þær niðurstöður birtast.