fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Eyjan

Andrés segir mögulegt að minnihlutastjórn VG og Framsóknar taki við á næstunni

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 26. apríl 2022 09:00

Mynd/Eyþór

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki er útilokað að minnihlutastjórn Vinstri grænna og Framsóknar taki við af núverandi ríkisstjórn ef niðurstaða rannsóknar ríkisendurskoðanda á sölu hlutabréfa í Íslandsbanka verði Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, óhagstæð. Ef niðurstaðan verði honum óhagstæð þá sé núverandi ríkisstjórnarsamtarfi sjálfhætt.

Þetta kemur fram í pistil Andrésar Magnússonar, Baksvið, í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann að innan VG og Framsóknar hafi verið rætt um að núverandi samstarfi sé sjálfhætt ef niðurstaða ríkisendurskoðanda verði Bjarna Benediktssyni óhagstæð.

Í framhaldi gæti minnihlutastjórn VG og Framsóknar tekið við  fram á vor og notið hlutleysis Samfylkingarinnar og Pírata fram að þingkosningum sem yrðu þá í vor.

Í grein sinni bendir hann á að Bankasýslumálið, sem snýst um nýlega sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, sé hitamálið á Alþingi þessa dagana. Segir hann að stjórnarandstöðunni hafi mistekist að þjarma að ríkisstjórninni og hafi misst af fágætu tækifæri til að koma sameinuð fram og þjarma að ríkisstjórninni um kjarna málsins. Þess í stað hafi stjórnarandstaðan gripið til hefðbundins málþófs en það hafi engan veginn átt við í gær. Með þessu hafi stjórnarandstöðunni mistekist að fylkja þeim 83% þjóðarinnar, sem eru ósátt við söluna á hlutnum í Íslandsbanka, að baki sér. Slíkt hljóti að teljast nokkurt afrek.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Ekki vera undirsáti – vertu skapandi þátttakandi

Steinunn Ólína skrifar: Ekki vera undirsáti – vertu skapandi þátttakandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hjördís María skrifar: Fasteignafélög og leigumarkaður

Hjördís María skrifar: Fasteignafélög og leigumarkaður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna

Áslaug Arna: Sjálfstæðisflokkurinn gamaldags og þungur – ég er rétta manneskjan til að takast á við krísuna