Nova hefur ákveðið að hefja undirbúning á skráningu hlutabréfa félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að stefnt sé að skráningu á fyrri helmingi þessa árs
Í aðdraganda fyrirhugaðrar skráningar hefur Nova gengið frá hlutafjáraukningu. Tilgangur hlutafjáraukningarinnar er að styðja enn frekar við framtíðarvöxt félagsins og áframhaldandi fjárfestingar svo félagið viðhaldi forskoti sínu í framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina sinna.
Samhliða hlutafjáraukningunni hafa núverandi hluthafar selt hluta af eign sinni. Nýir hluthafar eignast um 36% hlut í félaginu. Meðal nýrra hluthafa eru sjóðir í rekstri Stefnis, Íslandssjóða og Landsbréfa. Hluthafalisti ásamt ársreikningi og ítarlegri fjárhagsupplýsingum verður birtur í aðdraganda útboðsins.
„Fjarskiptafyrirtæki eru í eðli sínu mikilvæg innviðafyrirtæki og er Nova á meðal stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækja landsins. Vel heppnuð markaðssetning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hefur skilað Nova sterkri markaðshlutdeild og ánægðum og tryggum viðskiptavinum. Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfsfólks hefur skilað félaginu miklum ávinningi og tekjuvexti undanfarin ár. Við fögnum því að fá góðan liðstyrk inní eigendahópinn og erum spennt fyrir því að stíga það skref að skrá félagið á markað. Með skráningu félagsins fjölgar tækifærum fjárfesta til að koma að uppbyggingu fjarskiptainnviða á Íslandi. Ég hef starfað í ýmsum hlutverkum hjá Nova allt frá stofnun félagsins og hlakka til þessa nýja kafla í sögu Nova,“ er haft eftir Margréti Tryggvadóttur, forstjóra Nova.
„Við hjá Pt Capital og Nova erum ánægð með nýja hluthafa og hlökkum til að vinna með þeim í átt að frekari vaxtartækifærum og til að styðja við skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Nova hefur sýnt stöðugan vöxt á fjarskiptamarkaði og hefur náð sterkri markaðshlutdeild þar. Okkar stefna er að virkir innviðir fjarskiptakerfis okkar séu í eigu Nova. Fyrirtækið stefnir á framhaldandi vöxt og frekari stuðning við uppbyggingu á 5G fjarskiptakerfi,“ segir Hugh Short, stjórnarformaður Nova og forstjóri Pt Capital LLC.