Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks fyrir Suðurkjördæmi er nýr formaður Þingvallanefndar. Ný nefnd var kosin af Alþingi þann 24. mars síðastliðinn og skipaði umhverfisráðherra formann og varaformann skömmu síðar.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir úr Framsóknarflokki er varaformaður nefndarinnar.
Ásamt þeim Vilhjálmi og Hafdísi eru þingmennirnir Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Orri Páll Jóhannsson, Oddný G. Harðardóttir, Tómas A. Tómasson og Andrés Ingi Jónsson.
Varamenn í stjórn eru Birgir Þórarinsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Inga Sæland og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.
Þingvallanefnd er samkvæmt lögum skipuð þingmannanefnd sem er æðsta stjórn þjóðgarðsins á Þingvöllum.