Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, birti grein í Morgunblaðinu í dag til tilefni af alþjóðlegum sýnileikadegi trans fólks. Þar óskar hann trans fólki til hamingju með daginn og rekur hversu brýnt það er að við sem þjóð leggjum okkur fram við að viðurkenna reynsluheim trans fólks, að við hlustum á raddir þeirra og tökum þeim „eins og þau eru með kærleik og opnum örmum“.
Andrés segir að Íslendingar eigi að vera metnaðarfullir þegar kemur að mannréttindum.
„Virðing fyrir mannréttindum, sjálfræði einstaklingsins og fjölbreytileika mannflórunnar er til marks um góða samfélagslega heilsu.“
Íslendingar geti verið stoltir, að mörgu leyti, af þeim árangri sem hér hefur náðst, en betur má ef duga skal. Stórt framfaraskref var stigið við lögfestingu laga um kynrænt sjálfræði árið 2019, en þau lög viðurkenni loksins réttindi trans fólks hér á landi.
„Trans fólk er viðkvæmur þjóðfélagshópur sem hefur verið jaðarsettur og hlunnfarinn allt of lengi, og það var löngu tímabært að samfélagið mætti þörfum þeirra.
Baráttunni fyrir mannréttindum trans fólks er þó auðvitað síður en svo lokið“
Andrés bendir á að enn séu hér í gildi „úreltar skrifræðisreglur“ sem gerir hversdagslíf trans fóks óþarflega flókið og hættulegt. Til dæmis reglugerðir sem banni að gera salernisaðstöður kynhlutlausa, og þessu þurfi að breyta.
Andrés minnir einnig á langa biðlista trans fólks sem bíða eftir að komast í aðgerðir, og eins á fordóma sem þau verða fyrir í samfélaginu.
„Sömuleiðis ber enn á fordómafullum og meinfýsnum viðhorfum til trans fólks, sem ekkert hefur unnið sér til sakar annað en að vilja vera það sjálft. Fordómar og andúð jaðarsetja og einangra trans fólk, sem hefur einnig neikvæð áhrif á geðheilsu og sjálfsálit þess. Í stað þess að dæma og gagnrýna trans fólk ættum við að leggja okkur fram við að viðurkenna reynsluheim þeirra, hlusta á raddir þeirra og taka þeim eins og þau eru með kærleik og opnum örmum.“
Þetta sér sérstaklega nauðsynlegt þar sem margt trans fólk er ungt fólk sem enn að fóta sig í samfélaginu.
„Þess vegna veltur sjálf framtíðin á því að þjóðin taki trans fólki opnum örmum í stað þess að sýna því dómhörku og tortryggni. Sýnum á ótvíræðan hátt að samfélagið samþykki trans fólk eins og þau eru – að samfélagið sé til staðar fyrir þau, og með þeim, til framtíðar.
Í dag er alþjóðlegur sýnileikadagur trans fólks, sem þjónar okkur vel sem áminning um að sýna trans fólkinu í lífi okkar ást og kærleik, veita því plássið sem það á skilið, ljá því skilningsríkt eyra og halda baráttunni fyrir sjálfsögðum réttindum þeirra og friðhelgi ótrauð áfram – í dag sem alla aðra daga.
Til hamingju með daginn, kæra trans fólk!“