fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Brynjar svarar ádeilu Ragnars með nýrri sumarhúsasögu – Vænir gagnrýnendur um vanþekkingu

Eyjan
Föstudaginn 25. mars 2022 14:02

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, hefur blandað sér í umræðuna um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Það vakti nokkra athygli á dögunum þegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fjallaði um söluna með líkingamáli þar sem ekki var verið að selja hlut í banka heldur sumarbústaði í eigu VR með afslætti. Hann sagði síðan að ef hann viðhefði slíka vinnubrögð yrði honum ekki sætt sem formanni, en Ragnar hefur kallað eftir afsögn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra vegna málsins.

Boðinn var út um fjórðungs hlutur ríkisins í bankanum og var umfram eftirspurn gífurlega mikil. Söluverðið var á 117 kr hver hlutur, en á sama tíma var verðið skráð 122 í Kauphöllinni. Afsláttarverðið í ljósi umfram eftirspurnarinnar hefur valdið mikilli óánægju, sérstaklega þar sem að bréfin hækkuðu strax um tvö prósent svo gróði fjárfestanna strax á fyrsta sólarhring orðinn nokkur.

Hallarekstur

Brynjar heldur áfram með líkingu við sölu sumarhúsa en sagan er aðeins önnur en hjá Ragnari. Brynjar segir sögu af því að stéttarfélagi fái í hendur á sjöunda þúsund sumarhúsa sem eru metin á um tvö hundruð milljarða, í uppgjöri við erlenda aðila.

„Stéttarfélagið hyggst selja sumarhúsin þar sem stéttarfélagið vill ekki vera fasteignafélag í samkeppni við félagsmenn sína. Auk þess liggur fyrir að stéttarfélagið þarf á fjármunum að halda þar sem það hefur verið rekið með halla síðustu árin. Halli síðasta árs var til að mynda 288 milljarðar króna. Ljóst þykir að varlega þurfi að fara í söluferli sumarhúsanna svo sumarhúsamarkaðurinn fari ekki á hliðina,“ segir Brynjar í færslu á Facebooksíðu sinni.

Í sögunni er sett á laggirnar sérhæfð stofnun til að sjá um söluna. Stofnunin fær til liðs við sig fjölda sérfræðinga, innlendra sem erlendra, sem sérhæfa sig í sölu sumarhúsa. Að fenginni ráðgjöf sérfræðinganna er afráðið að selja sumarhúsin á 2-3 árum, í nokkrum áföngum. Ferlið er kynnt opinberlega fyrir öllum hagsmunaðilum og ekki síst fyrir stéttafélaginu sjálfu, sem samþykkir fyrirkomulag sölunnar.

Hverjir krefjast afsagnar?

„Í fyrsta áfanga eru seld sumarhús fyrir um 55 milljarða króna. Viðskiptin eru talin viðskipti ársins af þar til bærum aðilum, sem best þekkja til sumarhúsamarkaðarins. Þegar kemur að næsta áfanga, 9 mánuðum síðar, hafa sumarhús almennt séð hækkað töluvert í verði, eins og aðrar fasteignir. Hvert sumarhús í eigu stéttarfélagsins er nú metið að meðaltali á 40 milljónir króna og hafa sumarhúsin aldrei verið verðlögð hærra. Það liggur þó fyrir að kaupendur sumarhúsa eiga því að venjast að fá einhvern afslátt, jafnvel 5-10%, ef mörg hús eru keypt í einu lagi,“ segir Brynjar.

Síðan eru seld 1.380 sumarhús fyrir 53 milljarða staðgreitt, með 4,1% afslætti af ásettu verði sem jafngildir því að hvert sumarhús hafi verið selt á 38,4 milljónir króna.

„Krafist er afsagnar formanns stéttarfélagsins, af aðilum sem:

  1. a) hafa ekki kynnt sér málið,
  2. b) hafa kynnt sér málið en hafa – kannski eðlilega – ekki nægilega þekkingu til að geta skilið það, eða
  3. c) hafa kynnt sér málið og skilja það en kjósa að kalla það spillingu, af því þeir telja það sér til framdráttar,“ segir Brynjar að lokum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan

Iðjulaus Brynjar fer í búðina oft á dag – Þetta er ástæðan