Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Sænska ríkisstjórnin hefur brugðist við hækkun bensínverðs og lagt til að gripið verði til ráðstafana til að bæta neytendum upp hærra eldsneytis- og raforkuverð í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Vilhjálmur vill að gripið verði til aðgerða í þessum dúr hér á landi.
ASÍ, Neytendasamtökin og fleiri félög hafa kallað eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar, að gjöld á jarðefnaeldsneyti verði lækkuð en ríkið tekur til sín um helming útsöluverðs hvers bensínlítra.
Vilhjálmur segir með ólíkindum að stjórnvöld hafi ekki skipað starfshóp til að koma með tillögur um hvernig sé hægt að mæta því ástandi sem nú ríkir. „Löndin í kring hafa gripið til aðgerða en hér erum við með fjárskuldbindingar heimila og fyrirtækja beintengdar við íslensku vísitöluna sem gerir það að verkum að skuldir heimilanna eru að stökkbreytast,“ sagði hann.
Á síðustu 12 mánuðum hafi verðtryggðar skuldir heimilanna hækkað um 87 milljarða ef miðað er við 6,2% verðbólgu. „Hvernig má það vera að íslensk stjórnvöld bjóði íslenskum neytendum upp á svona ástand?“ sagði hann og bætti við að fyrst hafi Covid hleypt verðbólgunni upp og nú sé það „brjálæðingur í Rússlandi“ sem hleypi öllu í bál og brand með þeim afleiðingum að óðaverðbólga sé í allri Evrópu.
Nánar er hægt að lesa um málið í Fréttablaðinu í dag.