Snæbjörn Ingi Ingólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri alþjóðlega tæknifyrirtækisins Itera á Íslandi. Itera opnaði á síðasta ári skrifstofu í Reykjavík en aðalskrifstofur fyrirtækisins eru í Noregi. Itera sérhæfir sig í að skapa sjálfbær og stafræn viðskipti og með opnun skrifstofunnar í Reykjavík stefnir fyrirtækið á að auka umsvif sín hér á landi.
Snæbjörn Ingi starfaði áður sem viðskiptastjóri og sölustjóri í viðskiptalausnum hjá Origo. Hann hefur starfað lengi í upplýsingatækniumhverfinu og segist vera með brennandi áhuga á öllu sem viðkemur tækni og tækniþróun.
,,Ég hef starfað á vettvangi upplýsingatækni nær allan minn starfsferil og komið að flestum þáttum rekstrar, stefnumótunar og þróunar á þeim vettvangi. Ég er fullur tilhlökkunar að koma til starfa hjá Itera sem er afar spennandi fyrirtæki og hefur stækkað mjög mikið á undanförnum árum. Meginmarkmið Itera er að aðstoða fyrirtæki við að skapa sjálfbær og stafræn viðskipti með tæknilausnum og nýsköpun og hafa þannig jákvæð áhrif á rekstur þeirra. Það verður spennandi verkefni að byggja upp starfsemi Itera hér á landi,“ segir Snæbjörn Ingi.
,,Íslenskur upplýsingatæknimarkaður er á miklum tímamótum, og það hefur verið sprenging í fjölgun starfa á þessum vettvangi og erfiðlega gengur að ráða í störfin. En þar getur þjónusta Itera komið að gagni,“ segir hann ennfremur.
Itera er með 11 skrifstofur í 6 löndum. Itera vinnur að verkefnum fyrir fjölda alþjóðlegra fyrirtækja í gagnafrekum iðnaði. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins hér á landi eru Landsbankinn, Wise og Össur. Undanfarin fimm ár hefur Itera verið tilnefnt eitt af mest vaxandi nýsköpunarfyrirtækjum Noregs þvert á atvinnugreinar.
,,Ég er mjög ánægður að fá Snæbjörn til þess að byggja upp á Itera á Íslandi með okkur. Snæbjörn er reynslumikll sérfræðingur í upplýsingatækni með öflugan bakgrunn sem styður vel við markmið Itera að ná góðum árangri á Íslandi,“ segir Odd Khalifi, forstöðumaður alþjóðlegrar viðskiptaþróunar hjá Itera.
,,Slagorð Itera er „Gerðu gæfumuninn“ (e. Make a Difference), vísar til þess að við leggjum okkur fram um að hafa jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækja með því að búa til sjálfbær stafræn fyrirtæki.“