Allt logar innan Samfylkingarinnar á prófkjörsdegi í Reykjavík eftir að frambjóðandanum Guðmundi Inga Þóroddssyni formanni Afstöðu var meinuð þátttaka í prófkjörinu á síðustu stundu. Ástæðan er sú að Guðmundur Ingi er er enn á reynslulausn til ársins 2023 eftir fangelsisvist. Sjálfur telur hann sig þó kjörgengan samkvæmt lögum.
Í samtali við fréttastofu Vísis nú rétt í þessu segir Guðmundur Ingi þetta mikil vonbrigði, sérstaklega í ljósi þess að kjörstjórn Samfylkingarinnar, sem fyrrverandi þingkonan Ásta Guðrún Helgadóttir veitir forstöðu, tók framboð hans gilt í janúar.
„Það er náttúrulega skýrt að kjörgengið hafði verið staðfest hjá kjörstjórn. Þeir voru búnir að staðfesta og búnir að kanna það þannig að þetta kom vissulega á óvart. Þeir eru allt í einu að fetta fingur út í þetta núna bara svona degi fyrir kosningar eða tveimur,“ segir Guðmundur Ingi í samtali við Vísi
Fram hefur komið að ábendingar um að vafi léki á kjörgengi Guðmundar Inga hafi borist kjörstjórn í vikunni og hafi verið óskað eftir gögnum frá frambjóðandum um að hann væri kjörgengur. Það hafi Guðmundur Ingi gert en gögnin voru ekki talin sýna fram á kjörgengi með óyggjandi hætti. Kveðst Guðmundur Ingi ætla að skoða málið með lögfræðingum sínum.
Ljóst er að reiðin er mikil innan Samfylkingarinnar vegna málsins. Guðmundur Ingi hafði ásamt samherja sínum í framboðinu, Guðnýju Maju Riba, farið mikinn í aðdraganda prófkjörsins og saman báru þau ábyrgð á talsverðu magni af nýskráningum í flokkinn. Guðmundur Ingi segir blasa við að hann hefði náð kjör á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
„Frá því þetta varð ljóst hefur stuðningsyfirlýsingum hreinlega rignt yfir mig innan úr Samfylkingunni og ég tel alveg á tæru að ég hefði náð markmiðum mínum, enda hef ég beitt mér fyrir mikilli nýliðun og fann fyrir miklum meðbyr með framboðinu. Ég vil engu að síður nota tækifærið til að biðja þá sem ætluðu að kjósa mig um að styðja við framboð Guðný Maja Riba en hún lagði af stað með mér í þessa vegferð og höfum við fylgst að í baráttunni. Nái hún góðri kosningu verður tíma mínum og minna sjálfboðaliða ekki til einskis varið,“ skrifar Guðmundur Ingi í yfirlýsingu á Facebook.
Þar harma fjölmargir stöðuna og lýsa yfir óánægju sinni með niðurstöðuna. Meðal annars segir fyrrum ráðherra flokksins, Björgvin G. Sigurðsson, að ákvörðunin sé svívirðileg í alla staði.
Meðal þeirra sem lýsa yfir furðu sinni á málinu er almannatengillinn Andrés Jónsson.
Skrítnar fréttir um að frambjóðandi hafi verið útskurðaður ekki kjörgengur í prófkjöri Samfó degi fyrir prófkjör. Frekar brútal. Eru reglur sem taka kjörgengi af þeim fengið hafa refsidóma í takti við tímann? Er ekki nóg að fá dóminn og refsinguna? Óþarfa stéttaskipting IMO 🤨
— Andrés Jónsson (@andresjons) February 12, 2022
Skapast talsverð umræða um málið í þræði hans og þar stíga fram tveir aðilar sem að saka varaformann flokksins, Heiðu Björgu Hilmisdóttur, um að hafa átt hönd í bagga varðandi ákvörðunina. Heiða Björg, sem er í framboði í 2.sæti listans, vísar því hins vegar alfarið á bug í umræðunum um málið.
Þú virðist nokkuð betur að þér í hvað er að gerast í Samfylkingunni en félagarnir hér fyrir ofan. Ég hef starfað með Gumma og hef akkúrat engan hag af því að honum sé meinuð þátttaka – þvert á móti !
— Heiða Björg (@heidabjorg) February 12, 2022