Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Hefur blaðið eftir Ásmundi að þetta sé spennandi tækifæri og hann hafi lofað sínu fólki fyrir austan að bjóða sig fram sem sveitarstjóraefni. Fresturinn renni út um miðjan febrúar og að óbreyttu verði hann í framboði.
Áður höfðu fjölmiðlar skýrt frá því að Ásmundur hygðist bjóða sig fram í sveitarfélaginu og myndi stefna á oddvitasætið hjá Sjálfstæðismönnum.
Morgunblaðið hefur eftir Ásmundi að hann kunni vel við sig í Rangárþingi ytra og eigi vini á nánast öðrum hverjum bæ. Konan hans er ættuð af Suðurlandi og þau eiga sumarhús í sveitinni.
Þau hjónin fluttu nýlega lögheimili sitt að Árbæjarhjáleigu í Holtum. Hann sagði að mörg spennandi verkefni bíði í sveitarfélaginu og nauðsynlegt sé að skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið.
Hann sagðist hafa tilkynnt þingflokki Sjálfstæðisflokksins um fyrirætlanir sínar.