Segir Sky News að aðildarríki NATO hafi rætt að koma sér upp rúmlega 1.000 manna hersveitum í Rúmeníu, Búlgaríu, Ungverjalandi og Slóvakíu vegna framgöngu Rússa og af ótta við að þeir ráðist á Úkraínu.
Fram kemur að bresk stjórnvöld hafi átt í viðræðum við bandarísk stjórnvöld um að senda hermenn til Austur-Evrópu vegna stöðu mála en Rússar hafa sent tæplega 120.000 hermenn að úkraínsku landamærunum.
Heimildarmaður innan stjórnkerfisins sagði að engin ákvörðun hafi verið tekin en þetta sé einn af þeim möguleikum sem séu uppi á borðinu. Slík aðgerð er sögð geta orðið ein af lokatilraununum til að fá ráðamenn í Kreml til að hugsa sig tvisvar um ef viðræður um málefni Úkraínu fara út um þúfur. Það að senda hermenn til Austur-Evrópu væri einmitt þvert á það sem Pútín hefur krafist. Hann vill að NATO dragi allar hersveitir sínar frá Austur-Evrópu og Mið-Evrópu og segir að vera þeirra þar ógni öryggi Rússlands. NATO hafnar þessu algjörlega.
Þetta myndi einnig styrkja varnir óstyrkra ríkja í Austur-Evrópu sem óttast að Pútín ráðist á þau ef hann lætur til skara skríða gegn Úkraínu.