Wall Street Journal komst nýlega yfir drög að skýrslunni og birti upplýsingar úr henni. Fram kemur að bærinn Jask, sem er við suðvesturströnd Íran, hafi verið miðstöð vaxandi útflutnings á ávöxtum og grænmeti til Óman um árabil. 2008 kom íranski flotinn sér upp aðstöðu þar og á síðasta ári var ný olíuútflutningsmiðstöð tekin í notkun þar. En Jask virðist einnig koma við sögu í öðrum útflutningi sem þolir illa dagsljós.
Í skýrslunni, sem sérfræðingahópur vinnur að, kemur fram að íranski byltingarvörðurinn noti Jask sem miðstöð vopnaútflutnings til Jemen og fleiri ríkja. Vopnin eru meðal annars flutt með litlum bátum. Bandaríkjamenn hafa árum saman reynt að loka smyglleiðunum til Jemen og hafa tekið nokkra af þessum litlu bátum og fundið vopn í þeim.
Í maí á síðasta ári stöðvuðu Bandaríkjamenn einn slíkan bát sem í voru um 2.600 vélbyssur, kínverskir leyniskytturifflar og 194 íranskar sprengjuvörpur. Einnig voru sjónaukar frá Hvíta-Rússlandi í bátnum en þeir voru seldir til íranska hersins frá 2016 til 2018 að sögn hvítrússneskra yfirvalda. Annar bátur var tekinn í febrúar á síðasta ári. Um borð í honum voru 3.700 vélbyssur sem eru taldar hafa verið framleiddar í Íran.
Þessi linnulausi straumur vopna frá Íran hefur gert að verkum að Hútar hafa náð undirtökum í borgarastyrjöldinni en þeir ráða nú lögum og lofum í höfuðborginni Sanaa, hafnarborginni Hodeidah og gera sig líklega til að ná Maribhéraði á sitt vald en þar er megnið af olíulindum Jemen. Hútar eru sjítar eins og Íranar.