fbpx
Laugardagur 25.janúar 2025
Eyjan

Svíar hafa áhyggjur af fyrirætlunum Rússa – Hermenn sendir til gæslustarfa á götum úti

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 14. janúar 2022 06:57

Sænskir hermenn að störfum. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svíar hafa miklar áhyggjur af framgöngu Rússa gagnvart Úkraínu en þeir hafa stefnt um 100.000 hermönnum að landamærum ríkjanna auk mikils magns hernaðartóla. Rússar segjast ekki hafa í hyggju að ráðast á Úkraínu en bæði Úkraínumenn og NATO óttast að þeir muni gera það á næstunni. Svíar eru ekki meðlimir í NATO og tengjast því þessu máli ekki en þeir eru nágrannar Rússar og þurfa því að vera á tánum varðandi aðgerðir Rússa.

Svíum hefur lengst af tekist að lifa nokkurn veginn í sátt og samlyndi við Rússa þrátt fyrir að hafa ítrekað orðið fyrir áreiti af þeirra hálfu. Má þar nefna ótal ferðir sovéskra kafbáta um sænska skerjagarðinn á síðustu öld.

Í gær var ákveðið að auka viðbúnað sænska hersins og þá sérstaklega á Gotlandi. Þar hafa hermenn nú verið sendir á götu út og annast gæslu á ýmsum stöðum. „Við sjáum vaxandi aðgerðir nærri Svíþjóð,“ sagði talsmaður sænska hersins í samtali við Sænska ríkisútvarpið. Hann sagði að flugvöllurinn og höfnin væru mjög mikilvægir innviðir fyrir samfélagið á Gotlandi og það sé mikilvægt að sýna íbúum á Gotlandi og annars staðar að her landsins sé virkur og bregðist við þeim aðstæðum sem upp koma. Hann lagði áherslu á að ekki sé talið að bein hætta sé á innrás Rússa en það sé skynsamlegt að vera við öllu búin.

Í viðræðum Rússa, Bandaríkjamanna og NATO að undanförnu hafa Rússar krafist þess að NATO tryggi að Úkraína, Finnland og Svíþjóð fái aldrei aðild að NATO. Þessari kröfu hafa Bandaríkin og NATO hafnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristrún Frostadóttir: Atburðir úti í heimi hafa áhrif á ESB ferlið á Íslandi – geta breytt valmöguleikum okkar

Kristrún Frostadóttir: Atburðir úti í heimi hafa áhrif á ESB ferlið á Íslandi – geta breytt valmöguleikum okkar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla búin að senda Trump heillaóskir

Halla búin að senda Trump heillaóskir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Thomas, þetta er ekki svona

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Thomas, þetta er ekki svona
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Dagur getur blómstrað í þingflokki Samfylkingarinnar

Kristrún Frostadóttir: Dagur getur blómstrað í þingflokki Samfylkingarinnar