Guðmundur ræddi þetta í Fréttavaktinni á Hringbraut í gærkvöldi. Hann sagði ljóst að hann hafi mætt andstöðu innan ríkisstjórnarflokkanna og víðar með frumvarp sitt um stofnun hálendisþjóðgarðs en það fékk ekki afgreiðslu áður en þingið lauk störfum. Frumvarpið var lagt fram í nóvember. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um stofnun hálendisþjóðgarðs.
Hann sagði að hugsanlega hefði málið þurft að koma fyrr fram en málið sé mjög þungt. Hann sagðist sannfærður um að hægt sé að ná meiri sátt um það. Málið sé stórt fyrir VG en einnig fyrir Ísland. „Það skiptir ekki bara Ísland máli að koma hér fram með eitt helsta framlag okkar til náttúruverndar í heiminum,“ sagði hann.
Þegar hann var spurður hvort það sé ekki ljóst, í ljósi andstöðu innan ríkisstjórnarflokkanna, að það þurfi öðruvísi samsetta ríkisstjórn til að koma frumvarpi um hálendisþjóðgarð í gegnum þingið sagðist hann ekki vilja segja til um það. „Við bara leggjum fram okkar stefnumál í Vg fyrir kosningar og svo á borðið eftir kosningar hvað við leggjum áherslu á í stjórnarsamstarfi ef við fáum tækifæri til þess, og hálendisþjóðgarður er eitt af því sem við munum að sjálfsögðu leggja þar á borðið,“ sagði hann.
Þegar hann var spurður hvort betra sé fyrir umhverfismál að mynda vinstri stjórn með VG sagði hann að auðvitað vilji vinstri menn alltaf vera í vinstri stjórn, þá náist meiri árangur í þeim málum sem áhersla er lögð á, þar með talin loftslagsmál.