Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Páli Winkel, fangelsismálastjóra, að þessi fjölgun eigi sér eðlilegar skýringar. „Síðasta árið höfum við þurft að starfa í samræmi við sóttvarnareglur í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Í neyðarstigi almannavarna felst að einstaklingar eru ekki boðaðir inn í fangelsin nema í algjörum neyðartilvikum. Stóran hluta síðasta árs voru fangelsin rekin á litlum afköstum og fyrir vikið sitja eftir eldri dómar. Þeir dómar eru vægir og varða einstaklinga sem hafa hagað sér vel eftir að dómur var kveðinn upp,“ er haft eftir honum.
Hann sagði að nú væri byrjað að nýta fangelsin betur og að í síðasta mánuði hafi verið gefnar út handtökuskipanir á allar refsingar sem fyrnast á þessu ári og bindi hann því miklar vonir við að fleiri refsingar fyrnist ekki á árinu.