fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Kaupir 800 nýja bíla – Hófleg bjartsýni á ferðamannasumarið

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 27. apríl 2021 08:00

Ferðamenn í Leifsstöð. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílaleiga Akureyrar kaupir 800 nýja bíla á þessu ári og vonast Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, til að þokkaleg staða verði síðla sumars í ferðaþjónustunni.

Morgunblaðið skýrir frá þessu. Haft er eftir Steingrími að bókanir hafi byrjað að berast um og eftir páska. „Þetta fer hægt og rólega af stað og er í takt við okkar áætlanir. Ég geri ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði á bilinu 5-600 þúsund í ár. Þetta ferðamannaár verður álíka og í fyrra. 2020 byrjaði vel og svo var sumarið ágætt. Ég á samt ekki von á að ferðaiðnaðurinn komist á neinn skrið fyrr en á næsta ári,“ sagði hann.

Hann sagði einnig að Bílaleiga Akureyrar hafi keypt 800 bíla á síðasta ári en hafi upphaflega ætlað að kaupa 1.200 til 1.300 bíla en hafi fært hluta þeirra yfir á þetta ár.

Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Blue Car Rental, sagði að það sé byrjað að lifna yfir bókunum fyrir sumarið. Það sé komið eitthvað af bókunum fyrir maí og þeim fjölgi síðan mánuðina á eftir. Hann sagði að ferðamenn taki varfærin skref og bóki nú bíla með skemmri fyrirvara en venjulega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur