Þetta segir í grein sem Ólafur Örn Jónsson, heldri borgari og fyrrum skipstjóri, skrifa á vísir.is en greinin ber fyrirsögnina „Niðursetningarnir“. Í henni segir hann að allt frá hruni hafi allt verið gert til að koma í veg fyrir að gengi krónunnar hækkaði ekki því gróði útgerðarinnar, þegar evran kostaði 160 krónur, hafi verið fordæmalaus. Hækkandi tekjur þjóðarinnar hafi hins vegar þrýst á gengið og ljóst að gengi krónunnar myndi hækka. Þá hafi fjármálaráðherra skipað Seðlabankastjóra að byrja að kaupa gjaldeyri til að hægja á hagvexti og koma í veg fyrir eðlilega hækkun á gengi krónunnar.
„Takið þið nú vel eftir. Þarna fer fjármálaráðherrann gagngert gegn hagsmunum þjóðarinnar og almennings og tekur óáunninn hag útgerðarinnar fram yfir skyldur sínar gagnvart almenning í landinu sem átti rétt á því að gengið rétti úr kútnum og launafólk lífeyrisþegar og allir fengju eðlilegan kaupmátt launa sinna,” segir Ólafur.
Hann segir að með þessu, sem hann kallar fordæmalaust hryðjuverk, hafi Seðlabankinn síðustu 6 árin verið notaður til að gera borgara landsins að niðursetningum í eigin landi sem er eitt ríkasta og tekjuhæsta samfélag heims. „Hér hefur verið góðæri í 6 ár sem fer vaxandi en við höfum í engu fengið að njóta vegna glæpaverka sem framin eru á gengi krónunnar,“ segir hann.
Hann segir að gengi evrunnar eigi í raun að vera svipað og fyrir hrun eða um 90 krónur fyrir hverja evru en Seðlabankinn komist upp með að vera búinn að kaupa gjaldeyri fyrir 930 milljarða til að halda gengi krónunnar í 150 krónum fyrir hverja evru. Þetta sé gjaldeyrisvarasjóður í eigu launþega og lífeyrisþega.
„Þarna er grímulaust verð að stela af mér og þér til að hygla útgerðinni sem á Sjálfstæðisflokkinn. Útgerðin er að fá 50% meiri tekjur út á þetta skítaplott í Seðlabankanum,“ segir hann að lokum.