Landsvirkjun hefur ákveðið að takmarka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja í janúar, en verksmiðjurnar sömdu við fyrirtækið um kaup á skerðanlegri orku.
Afhending til fiskimjölsverksmiðja verður takmörkuð við 25 MW í janúar, en á fullum afköstum geta verksmiðjurnar nýtt um 100 MW. Þessi skerðing heldur áfram í vetur ef aðstæður krefja þess. Haustið 2021 hefur verið kalt og þurrt og innrennsli til miðlunarlóna Landsvirkjunar verið töluvert undir meðallagi. Niðurdráttur miðlunarlóna hófst strax 1. október og hefur verið eindreginn síðan.
Staðan er sérstaklega erfið á Þjórsársvæði, en þar hefur lítil úrkoma síðustu misseri valdið lágri grunnvatnsstöðu þannig að rennsli í Tungnaá og grunnvatnsrennsli til Þórisvatns hefur verið í sögulegu lágmarki. Þó staðan á Norðausturlandi sé betri þá nýtist hún ekki sem skyldi vegna takmarkaðrar getu flutningskerfisins að flytja orku milli landshluta.
Staðan hverju sinni verður metin og tekin ákvörðun í samræmi við hana um hvort framhald verður á þessum aðgerðum.