Á þriðjudaginn kusu Danir til sveitarstjórna og um leið og úrslit lágu fyrir hófust meirihlutaviðræður í öllum sveitarfélögum landsins og var Albertslund þar engin undantekning. Í Albertslund höfðu jafnaðarmenn (A) verið við völd síðustu 11 árin og voru hinir flokkarnir þreyttir á því og vildu breytingar. Íhaldsmenn (K), Danski þjóðarflokkurinn (DF), Venstre (V), Einingarlistinn (Ø) og SF gerðu því með sér skriflegan samning á miðvikudaginn um meirihlutasamning. Samkvæmt honum yrði Vivi Nør Jacobsen bæjarstjóri og jafnaðarmenn yrðu án áhrifa í bæjarstjórninni. Funduðu fulltrúar framboðanna á heimili eins þeirra.
En áður en gengið var formlega frá samningnum og hann kynntur formlega fyrir fjölmiðlum þurfti einn fundarmanna að yfirgefa fundinn og fara á annan fund. Hlé var því gert á fundinum klukkan 18.15. Jacobsen nýtti sér hléið til að fara heim til að fóðra köttinn sinn, eða það sagði hún hinum fundarmönnunum.
En samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla þá gerði hún meira en að fóðra köttinn því hún fundaði einnig með fulltrúum jafnaðarmanna og Radikale Venstre (B) í húsi nærri hinum fundarstaðnum. Þar skrifaði hún undir annan samning.
Tveimur tímum eftir að hún fór að „fóðra köttinn“ sátu átta fulltrúar Íhaldsmanna, Venstre, Danska þjóðarflokksins og Einingarlistans og grínuðust með að „kötturinn væri feitur og svangur“. Skyndilega kom Jacobsen inn og tók sér stöðu við enda fundarborðsins.
„Þetta er erfitt. Ég er komin hingað til að segja að ég sveik ykkur. Jafnaðarmenn hafa gert mig að bæjarstjóra,“ sagði hún. Þetta þýddi í raun að hinir fjórir flokkarnir yrðu án áhrifa í bæjarstjórninni næstu fjögur árin.
Næstu mínúturnar dundu spurningar á henni og síðan var hún beðin um að yfirgefa fundinn. Eftir sátu átta sveitarstjórnarmenn sem sáu fram á að verða áhrifalausir næstu fjögur árin. Þeir ræddu málið fram og aftur og komust að þeirri niðurstöðu að tveir kostir væru í boði: A) Að gefast upp og viðurkenna ósigurinn. B)Reyna að breyta niðurstöðunni og bjóða oddvita jafnaðarmanna, Steen Christensen sitjandi bæjarstjóra, bæjarstjórastólinn og gera samstarfssamning við jafnaðarmenn.
Ef leið B yrði farin myndi það þýða að Jacobsen stæði uppi áhrifalaus. Áttmenningarnir hringdu því í bæjarstjórann. Samtalið var stutt en skömmu síðar fóru áttmenningarnir heim til bæjarstjórans.
Á meðan á þessu stóð var fréttatilkynning send út þar sem fram kom að Jacobsen yrði bæjarstjóri næstu fjögur árin en hún vissi ekki að á þeirri stundu var verið að brugga henni launráð heima hjá sitjandi bæjarstjóra.
Þar komust viðstaddir að samkomulagi um að Christensen yrði áfram bæjarstjóri. Einnig var samið um formennsku í nefndum og annað sem tilheyrir meirihlutasamningi. Að auki var samið um að Vivi Nør Jacobsen og SF fái ekki sæti í neinum nefndum og verði algjörlega áhrifalaus allt næsta kjörtímabil.
„Okkur fannst sem við hefðum verið svikin og að hún hefði leikið tveimur skjöldum allan tímann svo það var enginn vafi um að hún ætti ekki að fá nein nefndarsæti. Maður á ekki að sætta sig við svona,“ sagði einn fundarmanna við B.T.
Ný fréttatilkynning var send út og Radikale Venstre var boðin aðild að meirihlutasamstarfinu. Eftir standa Jacobsen og hinir þrír bæjarfulltrúar SF sem munu verða algjörlega áhrifalausir í bæjarstjórninni næstu fjögur árin. Jacobsen náði að vera tilvonandi bæjarstjóri í tvær klukkustundir.
„Ágirnd er ein af dauðasyndunum sjö. Þarf ég að segja meira?“ sagði heimildarmaður B.T. um stöðuna.