fbpx
Laugardagur 01.febrúar 2025
Eyjan

Gagnaöflun undirbúningsnefndar á lokametrunum

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 1. nóvember 2021 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undirbúningsnefnd Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa mun funda daglega í vikunni en gagnaöflun nefndarinnar er á lokametrunum að sögn Birgis Ármannssonar, formanns nefndarinnar. Ekki liggur fyrir hvenær nefndin lýkur við tillögur að lausn þeirra álitamála sem komu upp í sambandi við þingkosningarnar.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Birgi að í dag og hugsanlega á morgun verði lokið við að fara yfir hvað vanti af upplýsingum. Einnig sé verið að ræða lögfræðileg atriði er varða málsmeðferð nefndarinnar.

Hann sagði að í framhaldinu vonist hann til að hægt verði að fara að ræða þau atriði sem nefndin þarf að leggja mat á og þá eftir atvikum byrja að undirbúa einhverja niðurstöðu. Hann sagði að það geti tekið nefndina nokkurn tíma að fara yfir þessu matskenndu álitamál, erfitt sé að segja hversu langur tími sé eftir í vinnu nefndarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Ólöf Tara er látin

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Einræðisherrann hefur tekið sér stöðu í Hvíta húsinu

Einræðisherrann hefur tekið sér stöðu í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón tekur með auðmýkt og hlýju á móti nýjum verkefnum – „Ekkert á Íslandi mér óviðkomandi“

Jón tekur með auðmýkt og hlýju á móti nýjum verkefnum – „Ekkert á Íslandi mér óviðkomandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Nú verður skákað í skjóli Trumps

Sigmundur Ernir skrifar: Nú verður skákað í skjóli Trumps
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Inga Sæland: „Við munum marka okkar spor í sandinn strax á þessu fyrsta ári“

Inga Sæland: „Við munum marka okkar spor í sandinn strax á þessu fyrsta ári“