Sendinefnd frá ESB fundaði með Tsai Ing-Wen, forseta Taívan, í gær. Kínverska utanríkisráðuneytið sagði að fundi loknum að ef þessu linni ekki muni það skaða samband ESB og Kína. „Við höfum beðið ESB um að leiðrétta þessi mistök og ekki senda röng skilaboð til aðskilnaðaraflanna sem tala fyrir sjálfstæði Taívan,“ sagði talsmaður utanríkisráðuneytisins í gær.
Sendinefnd ESB sagði í gær að Taívan sé verðmæt eyja sem verði að vernda. „Við komum hingað með einfaldan og skýran boðskap: Þið eruð ekki alein. Evrópa stendur með ykkur í að verja frelsið og réttarríkið og mannlega virðingu,“ sagði leiðtogi nefndarinnar, Frakkinn Raphael Glucksman.
Glucksmann er þekktur fyrir gagnrýni sína á Kína og fyrr á árinu settu stjórnvöld í Peking hann á lista yfir þá sem ekki mega koma til landsins.
Kínverska kommúnistastjórnin krefst þess að Taívan verði hluti af Alþýðulýðveldinu Kína en íbúar Taívan hafa lítinn áhuga á því. Þar búa 23,5 milljónir í þróuðu lýðræðisríki og hafa því lítinn áhuga á að lenda undir hæl kommúnistastjórnarinnar í Peking.