fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Setja upp öflugustu bílahleðslustöð landsins – Boða þáttaskil í hleðslutíma

Eyjan
Mánudaginn 1. nóvember 2021 21:00

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, vígði hleðslustöðina

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílabúð Benna hefur sett upp öflugustu bílahleðslustöð landsins við gatnamót suðurlandsvegar og vesturlandsvegar að Krókhálsi 9. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, vígði hleðslustöðina síðastliðinn föstudag.

Þessi nýja ofur hraðhleðslustöð, sem hönnuð er af Porsche, skilar allt að 350 kW og er mun öflugri en aðrar hraðhleðslustöðvar á landinu. Þær öflugustu hingað til eru 250 kW sem Tesla er að setja upp en sem dæmi má nefna að öflugustu hleðslustöðvar ON eru 150 kW. Með þessari nýju bílahleðslustöð verður hægt að hlaða rúmlega 100 kílómetra á aðeins 5 mínútum sem eru alger þáttaskil í hleðslutíma.

Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bílabúðar Benna, segir að rafbílaeigendur geti komið á Krókháls 9 og hlaðið bíla sína og í leiðinni uppgötvað hversu auðvelt og fljótlegt það er að hlaða rafbíl í slíkri stöð.

Benedikt Eyjólfsson

,,Þessi nýja hleðslustöð mun bæta til muna hleðsluhraða sem er í boði er og sýna þannig landsmönnum að framtíðin í rafbílaheiminum er nú þegar komin. Við viljum bæta þannig viðhorf og áhuga á rafbílavæðingunni enn frekar. Jafnframt ýtir þetta undir vilja fólks til að velja rafbíla með nýjustu tækni sem gefur þeim mun meira frelsi til langra ferðalaga án þess að þurfa að bíða lengi eftir hleðslu. Þetta leysir algengt vandamál sem er að almenningur horfi ekki á rafmangsbíl sem alvöru kost sem hægt sé að nota sem eina bíl til að komast í sumarbústað eða draga kerrur út á land,“ segir Benedikt.

,,Til þess að rafbílar nái til allra almennra bílaeigenda þá þarf að uppfylla það loforð að það sé hægt að fyllá á hleðsluna í bílnum á svipaðan hátt og um bensín eða dísel bíla sé að ræða. Með þessari stöð þá er verið að sýna og framkvæma að það sé hægt. Þessari stöð er ætlað að vera leiðarljós fyrir það að það sé raunverulegur möguleiki á því að skipta úr bensín eða dísel bíl yfir í rafbíl og að það sé hægt að nota bílinn að fullu á sama máta og eldri bíla.

Upplifunin rafbílaeigenda á að vera sambærileg við það að fara á bensinstöð og fylla á bílinn áður en haldið er út úr bænum og að ökumenn nái að hlaða nægilegum kílómetrum til þess að koma þér áleiðis hvert sem ferðinni er heitið. Það þarf engin að fyllast drægniskvíða lengur,“ segir Benedikt ennfremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum