Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að samkomulagið við Árkór feli í sér að fyrirtækið byggi allt að 270 íbúðir á Fannborgarreitnum en fyrirtækið keypti byggingar í eigu bæjarins á honum. Að auki má fyrirtækið byggja atvinnuhúsnæði á reitnum. Í heildina bætast um 200 íbúðir og atvinnuhúsnæði við á reitnum og mega byggingarnar vera allt að tólf hæðir.
„Það er auðvitað óheppilegt að vera að skipuleggja miðbæ í beinni andstöðu við langflesta íbúa miðbæjarins,“ hefur Fréttablaðið eftir Pétri H. Sigurðssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar.
Eigendur núverandi fasteigna hafa mótmælt þessum áformum harðlega af margvíslegum ástæðum og segir Pétur það sýna að samningurinn og verkefnið sé misráðið því íbúarnir séu mjög óánægðir með þetta.
Í samkomulaginu er kveðið á um að framkvæmdir hefjist á síðari hluta næsta árs og að þeim ljúki fyrir árslok 2025. Þar sem um „gríðarlega umfangsmikið þéttingarverkefni“ sé að ræða verði tímaáætlanir að standast og samskiptin við þá sem fyrir eru verða að vera góð. Einnig er kveðið á um að takmarka skuli ónæði og tilkynna um sprengingar og fleyganir með góðum fyrirvara.
Kópavogsbær fær kauprétt að allt að 4,5% íbúðanna og að minnsta kosti 15 til 20% íbúðanna verða ætlaðar þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Minnst 5% íbúða verða að uppfylla skilyrði um hlutdeildarlán.
Fréttablaðið hefur eftir Pétri að salan til Árkórs hafi verið mistök. „Kópavogsbær hafði alla þræði í hendi sér til að skipuleggja og byggja upp miðbæinn sjálfur,“ sagði hann og sagðist ekki vita hvað meirihlutanum gangi til með þessu. „Ætli það sé ekki ofurtrú Sjálfstæðisflokksins á einkaframtakinu?“