fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Eyjan

Hafa greitt 7,5 milljónir í bætur vegna skýrslu lögreglunnar um búsáhaldabyltinguna

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 29. janúar 2021 08:00

Frá Búsáhaldabyltingunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og þrír hafa fengið greiddar bætur frá ríkinu vegna skýrslu sem Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, gerði um mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins, svokallaða Búsáhaldabyltingu. Bæturnar eru á bilinu 150.000 til 500.000 krónur. Að auki hefur ríkið greitt 1,9 milljónir í lögfræðikostnað vegna málsins.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Réttarsátt var gerð í október 2018 vegna málsins og féllst ríkið á að greiða tveimur einstaklingum bætur vegna skýrslunnar. Í henni komu fram persónuupplýsingar um 75 manns hið minnsta, um stjórnmálaskoðanir þeirra, þátttöku í pólitísku starfi og þátttöku þeirra í mótmælunum.

Fjölmiðlar fengu skýrsluna afhenta í október 2014 en þá hafði verið reynt að afmá umræddar persónugreinanlegar upplýsingar úr henni. Það reyndist ekki erfitt að fjarlægja yfirstrikanir lögreglunnar og þar með voru persónuupplýsingar og ásakanir lögreglu, um fólk sem var til umfjöllunar í skýrslunni, komnar í dreifingu í samfélaginu. Persónuvernd kvað upp nokkra úrskurði vegna málsins og sagði skráningu persónuupplýsinga í þágu samantektarinnar óheimila og að miðlun þeirra samræmdist ekki lögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna: Hef ekki áhyggjur af fjölskyldutengslum við útgerðina í landinu

Áslaug Arna: Hef ekki áhyggjur af fjölskyldutengslum við útgerðina í landinu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta kostar krónan okkur

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta kostar krónan okkur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun: Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?

Könnun: Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðlaugur Þór: Gímaldið er stærðar kjötvinnsla en ekki lítill skúr – hvernig gat þetta gerst?

Guðlaugur Þór: Gímaldið er stærðar kjötvinnsla en ekki lítill skúr – hvernig gat þetta gerst?