fbpx
Þriðjudagur 29.apríl 2025
Eyjan

Biden segir að Bandaríkin hafi mikla þörf fyrir að loftslagsmálin verði leyst

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 29. janúar 2021 12:55

Joe Biden. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, hefur tekið allt aðra stefnu í loftslags- og umhverfismálum en Donald Trump forveri hans í embætti. Hann hefur nú boðað til leiðtogafundar um loftslagsmál í apríl og vill að Bandaríkin taki forystu í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og hnattrænni hlýnun.

Á miðvikudaginn skrifaði hann undir fjölda tilskipana sem eiga að hafa áhrif til hins betra í baráttunni við loftslagsbreytingarnar og við það tækifæri sagði hann að Bandaríkin verði að taka forystu í málaflokknum.

„Við verðum að vera í forystu á alþjóðavettvangi því eins og John Kerry hefur margoft bent á þá geta Bandaríkin ekki tekist ein á við þessar áskoranir,“ sagði Biden í yfirlýsingu.

Kerry, sem var utanríkisráðherra í stjórn Barack Obama, mun leiða baráttuna gegn loftslagsbreytingum í ríkisstjórn Biden.

Biden hefur gert baráttuna gegn hnattrænni hlýnun að einu mikilvægasta máli ríkisstjórnar sinnar. Hann lagði enn á ný áherslu á þetta á miðvikudaginn þegar hann sagði hnattræna hlýnun ógna tilvist mannkyns en um leið skapi aðgerðir gegn þeim tækifæri fyrir bandarískt efnahagslíf og atvinnulíf.

„Ég tel að við höfum beðið alltof lengi með að takast á við loftslagsmálin. Við getum ekki beðið lengur. Við sjáum það með eigin augum. Við finnum það. Við finnum það á líkama okkar. Nú er kominn tími til aðgerða,“ sagði hann.

Hvíta húsið ætlar því að boða til loftslagsráðstefnu þann 22. apríl næstkomandi. Þar á að ræða hvernig er hægt að styrkja sumar þær ákvarðanir sem hafa verið teknar til að stöðva losun gróðurhúsalofttegunda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Í skálkaskjóli skrollsins

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Í skálkaskjóli skrollsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hanna Katrín Friðriksson: Leiðrétting veiðigjalda festir í sessi fyrirsjáanleika í sjávarútvegi

Hanna Katrín Friðriksson: Leiðrétting veiðigjalda festir í sessi fyrirsjáanleika í sjávarútvegi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Mesta lýðræðisógn okkar tíma

Sigmundur Ernir skrifar: Mesta lýðræðisógn okkar tíma
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Raunheimar forstjóra og ráðherra

Þorsteinn Pálsson skrifar: Raunheimar forstjóra og ráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðmundur Ingi Kristinsson: Embættismennirnir leggjast á árar með okkur

Guðmundur Ingi Kristinsson: Embættismennirnir leggjast á árar með okkur