fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Jón Ásgeir hraunar yfir Gunnar Smára í nýrri bók – „Nennti helst ekki til Danmerkur nema að fá undir sig einkaþotu“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 21. janúar 2021 10:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í næstu viku kemur út bókin Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar eftir Einar Kárason. Þar segir Jón Ásgeir sjálfur viðskiptasögu sína. Viðskiptablaðið hefur bókina undir höndum og birtir kaflabrot þar sem Jón Ásgeir ber fyrrverandi samstarfsmanni sínum, Gunnari Smára Egilssyni, stofnanda Sósíalistaflokksins, ekki vel söguna, en Gunnar Smári stýrði fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs um skeið á árunum fyrir hrun.

Jón Ásgeir segir að Gunnar Smári hafi verið að missa tökin á rekstrinum og þá hafi verið fundið upp á því að stofna fríblað í Danmörku, Nyhedsavisen. Það blað var gefið út á annað ár. Jón Ásgeir segir:

„En það var engin heimavinna unnin. Það var tilkynnt digurbarkalega á blaðamannafundi um stofnun blaðsins löngu áður en það átti að fara að koma út. Og gefið í skyn að samkeppnin mætti fara að vara sig. Sem þýddi að hún hafði nægan tíma til að undirbúa það, starta sínum eigin fríblöðum og svo framvegis. Svo höfðu menn ekkert hugsað út í það að þótt það sé yfirleitt opið að utan að póstkössum og lúgum hér á landi, þá þarf lykla til að komast að þeim víðast hvar í Danmörku. Gunnar Smári lét sig á endanum hverfa og tapið var gígantískt, og líka á öðru fríblaði, Boston Now vestanhafs, þótt ekki væri það sambærilegt við tapið í Danmörku.“

Jón Ásgeir segir síðan að Gunnar Smári hafi byrjað að tala illa um hann og fyrirtæki hans eftir hrun:

„Eftir hrun var Gunnar Smári síðan fljótur að byrja að drulla okkur út í sínum ummælum og skrifum. Og svo er hann sósíalistaforingi í dag, maður sem í þá daga nennti helst ekki til Danmerkur nema að fá undir sig einkaþotu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi