fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Sósíalistaflokkurinn kannast ekki við dularfullan áróðurspóst – „Þorsteinn Már og fjölskylda hans nota tíbeskt fjallageitasmjör á Namibíuhumarinn sinn“

Bjarki Sigurðsson
Föstudaginn 10. september 2021 13:00

Mynd/Stefán

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dularfullur póstur hefur borist Reykvíkingum seinustu daga þar sem fólk er hvatt til að kjósa Sósíalistaflokkinn. Í bréfinu sem laumað er inn um lúgu íbúa segir að öllum stjórnmálaflokkum sé „drull um þig“ og er Sjálfstæðisflokkurinn helsta skotmark bréfsins.

„Þótt þú slökkvir á sjónvarpinu í öllum dagskrárhléum og smellir leiftursnöggt á „skip ad“ á undan öllum Youtube-myndböndum sem þú horfir á blasa við þér brosandi smetti úti í strætóskýli sem skella orðum framan í þig eins og „frelsi“ og „tækifæri“,“ segir meðal annars í bréfinu.

Þá er fólk beðið um að kjósa Sósíalistaflokkinn til að koma núverandi ríkisstjórn í burtu og sagt að flokkurinn sé sá eini sem getur stöðvað Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Vinstri græna.

Mynd/DV

Í samtali við DV segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og formaður framkvæmdastjórnar flokksins, að bréfið sé ekki frá flokknum sjálfum. Líklegast er um að ræða dyggan aðdáanda sem vill hvetja samlanda sína í að kjósa flokkinn.

Höfundur bréfsins fer um víðan völl og talar meðal annars um raunveruleika þáttinn „Íslensk stjórnmál“ og segir að „Þorsteinn Már og fjölskylda noti tíbeskt fjallageitasmjör á Namibíuhumarinn sinn“.

Mynd/DV
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum