MMR gerði á dögunum könnun fyrir Sósíalistaflokkinn er varðaði spillingu í stjórnmálum hér á landi. Niðurstaðan var sú að 30 prósent landsmanna telja spillingu vera mjög mikið vandamál í íslenskum stjórnmálum og 32 prósent að spilling sé frekar mikið vandamál.
2Þá eru einungis 3 prósent sem telja spillingu vera mjög lítið eða ekkert vandamál í stjórnmálum og 11 prósent frekar lítið vandamál. 22 prósent eru beggja blands.
Þetta kemur fram á síðu Sósíalistaflokksins. Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, deildi færslunni á Facebook-síðu flokksins.
Hann sagði þar að ljósi þess að samanlögð 62 prósent telji spillingu heldur mikið vandamál, og samanlögð 14 prósent líti á hana sem lítið eða ekkert vandamál, sé ljóst að það sé ríkjandi hugmynd meðal almennings að stjórnmálin á Íslandi séu spillt.
„Ef við berum saman þessi 62% sem telja að spilling sé mikið vandamál í íslenskum stjórnmálum við þau 14% sem telja spillinguna vera lítið vandamál er augljóst að það er ríkjandi hugmynd meðal almennings að stjórnmálin séu spillt. Svo ríkjandi að lýðræðinu stafar hætta af spillingunni og tortryggni almennings gagnvart stjórnmálunum.“ skrifar hann.
Í færslu Sósíalistaflokksins er betur gert grein fyrir niðurstöðum könnunarinnar. Þar er sérstaklega fjallað um viðhorf Sjálfstæðisfólks til spillingar, en sá hópur skar sig frá hinum. Einungis 22 prósent þeirra líta á spillingu sem mjög mikið eða frekar mikið vandamál í stjórnmálum hér á landi.
Þá segja 40 prósent sjálfstæðisfólks að spilling sé mjög lítið, eða frekar lítið vandamál, en ef aðrir flokkar yrðu skoðaðir saman á sama hátt næði það átta prósentum.
Í færslu Sósíalistaflokksins segir:
„Sjálfstæðisflokksfólk er eins og sérstakur þjóðflokkur þegar kemur að afstöðu til flestra samfélagsmála, sker sig rækilega frá meginþorra landsmanna. Og það sem er svo undarlegt er að oftast er það sem afstaða Sjálfstæðisflokksfólks sem ræður ferðinni á Íslandi.“